29.nóv ~ 30.des

Ævintýri í Jólaskógi

Menning í Kópavogi

Guðmundarlundur
3.300 kr.

Ævintýri í Jólaskógi var frumflutt fyrir jólin 2020 og er þetta því þriðja árið sem  www.jolasveinar.is bjóða upp á þessa skemmtilegu sýningu. Farin verður önnur leið í gegnum skóginn en í fyrra, gestir heyra nýjar sögur af uppáhalds tröllafjölskyldunni sinni og kynnast jafnvel einhverjum nýjum persónum sem þau hafa ekki hitt áður.

Verkið er eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og er það hún, ásamt Andreu Ösp Karlsdóttur, Hlyni Þorsteinssyni, Sigsteini Sigurbergssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Þórunni Lárusdóttur sem ber ábyrgð á því að jólasveinafjölskyldan skili sem bestu verki. Flest þekkjum við þau fyrir störf sín með Leikhópnum Lottu og eru þau vön að setja upp sýningar utandyra þó vissulega sé óvenjulegt að þau velji náttúruna sem sýningarstað svona að vetri til.

Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng sýning þar sem áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi, vopnaðir vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr jólafjölskyldu okkar Íslendinga, þau Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og tröllasystkini þeirra.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að skyggja. Þannig byrjar fyrsta sýning hvers dags klukkan 17.00 og leggur
þá fyrsti hópurinn af stað í vasaljósagöngu inn í skóginn. Ferðalagið hefur verið varðað með jólakúlum, luktum og öðru jólaskrauti svo
áhorfendur eigi það ekki á hættu að villast í skóginum.

Eftir stutta göngu koma áhorfendur svo að fyrsta „sviðinu“ en þar er vel tekið á móti hópnum og flutt lítil jólasaga um ævintýri tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrri tíma. Verkið er tæpar tíu mínútur í flutningi og þegar því lýkur heldur hópurinn áfram ferð sinni um skóginn. Litlu innar rekast áhorfendur á fleiri tröll en alls er um að ræða fjögur „svið“, fjórar litlar sögur, sem hver um sig er flutt af einhverjum íbúa Grýluhellis. Gönguferðin tekur þannig tæpan klukkutíma og að henni lokinni er öllum boðið í myndatöku með jólasveini auk þess sem boðið er upp á heitt kakó og piparkökur.

Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, koma vel skóaðir og með vasaljós en öll þessi atriði eru nauðsynleg til að hægt sé að njóta
sýningarinnar til hins ítrasta.

Mælt er með sýningunni fyrir fjögurra ára og eldri en að sjálfsögðu eru allir velkomnir til okkar. Leiðin er þó ekki fær kerrum svo yngstu
börnunum þarf að halda á ef þið þurfið að hafa þau með í för. Gestir eru beðnir um að skilja hunda eftir heima og er það bæði svo þeir trufli
ekki sýninguna og aðra gesti.

Dagsetningar

29.nóv

30.nóv

01.des

02.des

03.des

05.des

06.des

09.des

10.des

14.des

15.des

17.des

20.des

22.des

27.des

28.des

29.des

30.des

UPPHITUN

Horfðu og hlustaðu

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
apr
Gerðarsafn
21
apr
Salurinn
23
apr
Bókasafn Kópavogs
24
apr
Bókasafn Kópavogs
24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Salurinn
25
apr
Gerðarsafn
04
maí
Salurinn
06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Menning í Kópavogi

30
apr
02
maí
Menning í Kópavogi
04
maí
Menning í Kópavogi

Sjá meira