17.jan 2020 ~ 21.jún 2020

AFRIT

Gerðarsafn

Á sýningunni Afrit eru verk sjö samtímalistamanna sem afbyggja hugmyndir okkar um ljósmyndir sem glugga að raunveruleikanum. Sýningin er í senn könnun á óljósu eðli ljósmyndarinnar og leikur með möguleika miðilsins þar sem látið er reyna á þolmörk hans.
Ljósmyndir kunna að virðast hlutlaus birtingarmynd veruleikans en í raun sýna þær okkur aðeins yfirborð hluta. Þær eru afritun af útliti afmarkaðs veruleika en því má ekki gleyma að ljósmyndin sjálf er þrívíður hlutur. Í stað þess að líta á ljósmynd sem glugga að veruleikanum er nær lagi að líta á hana sem umbreytingu úr einum hlut í annan.
Verkin á sýningunni minna á að ljósmynd er afritun og endurtekning á því sem hún birtir. Afritunin sjálf verður að umfjöllunarefni listamannanna með vísun í það að ljósmyndir eru augnablik sem hafa verið fryst, afrituð og varðveitt. Afritunin birtist í yfirfærslu af landslagsljósmynd þar sem ljósmyndina sjálfa er hvergi að sjá. Hún birtist í varðveislu á útliti náttúrulegra fyrirbrigða þar sem mennskur og jarðfræðilegur tími mætast. Hún birtist einnig í endurtekningu þar sem hver mynd er örlítið breytt afritun af hinni fyrri. Frosin augnablik fara að líða á ný með endurtekningu hvers ramma.

Listamenn:
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
Bjarki Bragason
Claudia Hausfeld
Hallgerður Hallgrímsdóttir
Katrín Elvarsdóttir
Pétur Thomsen
Þórdís Jóhannesdóttir

Sýningarstjóri:
Brynja Sveinsdóttir.

Sýningin Afrit er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2020.

Mynd: Hallgerður Hallgrímsdóttir, A Few Thoughts on Photography Vol. II, 2019.

LISTAFÓLK

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir

Bjarki Bragason

Claudia Hausfeld

Hallgerður Hallgrímsdóttir

Katrín Elvarsdóttir

Pétur Thomsen

Þórdís Jóhannesdóttir

SÝNINGARSTJÓRN

Brynja Sveinsdóttir

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
01
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
20
des
Náttúrufræðistofa Kópavogs
20
des
Bókasafn Kópavogs
21
des
Menning í Kópavogi
22
des
23
des
Bókasafn Kópavogs
02
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

07
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
09
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira