09.mar 13:00 - 16:00

Birgittuþing

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Birgittuþing – málstofa um rithöfundinn Birgittu H. Halldórsdóttur og verk hennar.

Öll velkomin, skráning á eyrun.osk@kopavogur.is

Þegar talað er og skrifað um uppgang íslensku glæpasögunnar er iðulega miðað við árið 1997 – árið sem þau Arnaldur Indriðason og Stella Blómkvist gáfu út sínar fyrstu bækur. Það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, enda höfðu þá aðeins komið út 34 íslenskar glæpasögur eftir 13 höfunda. 21 þeirra var eftir karla – en 13 eftir Birgittu Halldórsdóttur, sem var hvergi nærri hætt þegar þarna var komið sögu.

Og nú er er komin út hennar 21. glæpasaga, rúmum tuttugu árum eftir að sú síðasta kom út. Hið íslenska glæpafélag fagnar þessari endurkomu Birgittu með málþingi um hana og verk hennar.

Birgitta Halldórsdóttir – frumkvöðull kvenna á sviði glæpasagna

Birgitta Halldórsdóttir er einn afkastamesti – og vinsælasti – glæpasagnahöfundur landsins og var lengi vel eina konan í þeirra hópi. Sérstaða hennar sem rithöfundar var og er mikill, því hún blandar saman ástar- og glæpasagnahefðinni sem dansa á mörkum þess að vera æsispennandi ástarsögur og rómantískar glæpasögur.

Elva Rún Pétursdóttir bókmenntafræðingur flytur hér fyrirlestur sem hún vann upp úr BA-ritgerð sinni um Birgittu og hennar verk, þar sem hún skoðar meðal annars hvernig nokkrar af sögum hennar falla inn í formúlu klassískra og harðsoðinna glæpasagna.

„Það fellur betur í kramið hjá lesandanum”

Í viðtali við dagblaðið Dag í desember 1998 segist Björn Eiríksson útgefandi hjá Skjaldborg svartsýnn á framtíð íslensku glæpasögunnar. Hann segir ágætlega hafa gengið að selja bækur Birgittu Halldórsdóttur, en aðra íslenska sakamálahöfunda hafi honum ekki tekist að selja að ráði. Skýringarnar eru tvær, að hans mati: Birgitta hafi náð að skapa sér nafn „á meðan slíkar bækur voru enn í tísku” og svo sé hún líka „útlenskari“ en kollegar hennar – skrifi eins og erlendur höfundur. Og það, segir hann, „fellur betur í kramið hjá lesandanum.“ En hversu „útlensk“ var Birgitta í sínum skrifum?

Ævar Örn Jósepsson, foringi Hins íslenska glæpafélags, reynir að komast til botns í því.

Undir óskasólu

Fyrsta nýja bók Birgittu í tuttugu ár, Undir óskasólu, er komin út hjá Storytel. Þetta er sjálfstætt framhald sögunnar Dætur regnbogans, sem kom út 1992. Birgitta les upp úr bókinni og segir frá tilurð hennar og forsögu.

Hlé – kaffiveitingar

Miðaldra maðurinn og dularfullu konurnar

Miðaldra bóksafnari rekst á krumpaðan, upplitaðan fregnmiða: Forlagaflækja, Týnda brúðurin, Afbrot og ástir, Ást og dagar, Kona vitarvarðarins, Sigrún og Inga. Sjö bækur, fjórar konur: Aðalheiður Karlsdóttir, Ísól Karlsdóttir, Guðbjörg Hermannsdóttir og Birgitta H. Halldórsdóttir. Hvað er í gangi?! Hvaðan komu þessar konur?

Árni Matthíasson, tónlistar- og bókmenntagagnrýnandi, lestrarhestur og sérlegur áhugamaður um allt sem er öðruvísi, kannaði málið.

Hver er Birgitta?

Ævar Örn ræðir við rithöfundinn og bóndann Birgittu H. Halldórsdóttur um verk hennar og rithöfundarferil.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
feb
17
apr
Gerðarsafn
20
mar
Bókasafn Kópavogs
20
mar
Salurinn
20
mar
Bókasafn Kópavogs
17:00

Macramé

21
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
mar
Gerðarsafn
22
mar
Bókasafn Kópavogs
23
mar
23
feb
Gerðarsafn
14:00

Leiðsögn

24
mar
Bókasafn Kópavogs
slökunarjóga
12:00

Stólajóga

03
maí
04
maí
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

20
mar
Bókasafn Kópavogs
20
mar
Bókasafn Kópavogs
17:00

Macramé

21
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

22
mar
Bókasafn Kópavogs
24
mar
Bókasafn Kópavogs
24
mar
Bókasafn Kópavogs
slökunarjóga
12:00

Stólajóga

25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
26
mar
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira