Drekasmiðja með listakonunum Guðrúnu Veru Hjartardóttur og Sigrúnu Halldóru Gunnarsdóttur í tengslum við sýninguna Fullt af litlu fólki. Á þessum tíma árs er haldið uppá Mikjálsmessu um allan heim, hátíðin sem ber nafn Mikjáls erkiengils, sem háði baráttu við Drekann ógurlega. Í smiðjunni verður kennt hvernig hægt er að gera dreka úr léttum efnum og hvernig maður getur, í gegnum hreyfingu og leik, lært að temja hann og fljúga honum!