28.sep 2019 13:00

Drekasmiðja I Fjölskyldustund

Gerðarsafn

Gerum dreka úr léttum efnum og fljúgum og leikum!

Drekasmiðja með listakonunum Guðrúnu Veru Hjartardóttur og Sigrúnu Halldóru Gunnarsdóttur í tengslum við sýninguna Fullt af litlu fólki. Á þessum tíma árs er haldið uppá Mikjálsmessu um allan heim, hátíðin sem ber nafn Mikjáls erkiengils, sem háði baráttu við Drekann ógurlega. Í smiðjunni verður kennt hvernig hægt er að gera dreka úr léttum efnum og hvernig maður getur, í gegnum hreyfingu og leik, lært að temja hann og fljúga honum!
Fjölskyldustundir á laugardögum eru í boði Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Salurinn og Héraðsskjalasafn.
Smiðjan er opin öllum og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.
 
Guðrún Vera Hjartardóttir nam listir í Myndlista- og handíðaskólanum á árunum 1987–1991 og BA í Akademie Voor Beeldende Kunst í Enschede, Hollandi, á árunum 1991–1994 og lauk við listgreinakennslu (MA) frá Listaháskóla Íslands árið 2011. Hún leggur áherslu á skúlptúr og innsetningar í rými og hefur sýnt verk sín víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og á Íslandi. Á meðal sýninga má nefna: Rætur (Gallerí Hlemmur), Beðið eftir meistaraverki (Gerðarsafn), Velkomin(n) í mannheima (Listasafn Reykjavíkur), Happy days, experiences of the double (Broadway Gallery, New York), Looking at others (Umjetnicki paviljon u Zagrep, Króatía).
Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir / Úa Von lauk námi á myndlistarbraut Listaháskóla Íslands (BA) áður hún hélt til Vínar í frekara listnám við  Akademie der Bildende Kunste, þar sem hún útskrifaðist árið 2014. Hún vinnur í blandaða miðla; teikningar, skúlptúra, málverk, gjörninga, hljóð – og vídeó innsetningar. Hún vinnur verk sín út frá hugmyndum sem birtast í undirmeðvitundinni, á mörkum drauma og dagdrauma og hefur áhuga á að skoða eigin skynjun og skapandi ferli sem leið til sjálfsþekkingar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Gerðarsafn
06
feb
Gerðarsafn
06
feb
Gerðarsafn
06
feb
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira