11.maí 10:30

Fjölskyldustund I Útskrifatarnemar LHÍ með smiðjur og fyrirlestra

Gerðarsafn

Listsmiðjur og fleira fyrir alla fjölskylduna.

ÚTSKRIFTARVIÐBURÐUR LISTKENNSLUDEILDAR LHÍ
Ýmis erindi, tónlistarflutningur og fjölbreyttar smiðjur fyrir alla fjölskylduna.
  
Menningarhúsunum í Kópavogi- Gerðarsafn
11. maí 2019
10.30-16.30
 
Laugardaginn 11. maí stendur listkennsludeild Listaháskóla Íslands fyrir útskriftarviðburði í Menningarhúsunum í Kópavogi. Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð LHÍ og þar kynna verðandi listgreinakennarar lokaverkefni sín með fjölbreyttum hætti. Dagskráin er spennandi en í boði eru margskonar erindi, tónlistarflutningur og fjölbreyttar smiðjur fyrir alla fjölskylduna! Dagskrá stendur frá 10.30-16.30 í Gerðarsafni og er opin öllu fólki, börn ásamt aðstandendum eru sérstaklega boðin velkomin. Aðgangur ókeypis.
 
Útskriftarnemendur:
Andrea Magdalena Jónsdóttir
Ásgeir Jón Ásgeirsson
Ásta Vilhjálmsdóttir
Elín Helena Evertsdóttir
Emelía Antonsdóttir Crivello
Fríða María Harðardóttir
Guðrún Jóna Halldórsdóttir
Jóhanna Ásgeirsdóttir
Kristín Dóra Ólafsdóttir
Rúna Vala Þorgrímsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
 
 
Dagskrá í Gerðarsafni:

10.30-12.30. Erindi á neðri hæð. 

10.30-11:00
Allt sem er grænt, grænt finnst mér vera fallegt – Bréfaskriftir um fegurð
Andrea Magdalena Jónsdóttir
Erindi 30 mín og hljóðverk.
 
11.00-11.30
Essið: Áhrif dagbókarskrifa á unglingsstelpur í hópastarfi í félagsmiðstöð og þróun námsefnis því tengdu
Kristín Dóra Ólafsdóttir
Erindi 30 mín.
 
11.30-12.00
„Hvaðan færðu allar þessar hugmyndir?“ ADHD einkenni virkjuð til góðs í sviðslistum
Emelía Antonsdóttir Crivello
Erindi 30 mín.
 
12.00-12.30
Mótandi efni jarðar- Saga, miðlun og fræðilegt viðhorf til leirlistar
Guðrún Jóna Halldórsdóttir
Erindi 30 mín.
 
Kl. 12.30-13.00- Hlé.
 
Kl. 13.00-15.00. Smiðja á neðri hæð. 
Gera sjálf/ur
Ásta Vilhjálmsdóttir
Textílsmiðja 120 mín.
Fyrir alla aldurshópa, gott að allra yngstu börnin njóti aðstoðar forráðamanna.
Hámark 8 þátttakendur í einu.
 
Um smiðjuna:
Titillinn GERA SJÁLF/UR vísar til mikilvægi þess að kunna til verka svo hægt sé að bjargað sér í daglegu, sjálfbæru lífi með því að nýta, endurnýta, breyta og laga.
 
Í textílsmiðjunni verður boðið upp á að gera allskonar brúður úr sokkum og brúðuhíbýli úr umbúðum, efnisbútum og öðrum efnivið sem annars gæti endað ónýttur í ruslinu. Börn eru einnig sérstaklega hvött til að koma sjálf með efnivið að heiman til að nota í smiðjunni.

13.30-15.00.
Listir og mannréttindi: Greinar Barnasáttmálans kenndar í gegnum skuggaleikhús
Guðrún Ragnheiður Guðmundsdóttir
Experimental shadow theatre workshop 90 mín.
All ages, very small children to be assisted by their accompany.
Maximum 10 participants at each time.

13.30 – 14.30. Erindi á efri hæð. 
 
13.30-14:00
Íslensk þjóðlög: Nótna og kennslubók
Ásgeir Jón Ásgeirsson
Tónlistarflutningur og spjall 30 mín.
 
13.00-14.30
Vinnusmiðja fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd- Mæður og börn
Fríða María Harðardóttir
Erindi 30 mín.
 
14.30-15.30. Smiðja á neðri hæð og úti. 
Óravíddir: ferðalag um undraheima stærðfræðinnar
Jóhanna Ásgeirsdóttir
Stærðfræðismiðja 60 mín.
Fyrir alla aldurshópa, gott að allra yngstu börnin njóti aðstoðar forráðamanna.
 
Um smiðjuna:
Óravíddir er stærðfræðinámsefni fyrir alla aldurshópa. Það er samt ekki námsbók, heldur málverk og smáforrit. Málverkið er nokkurskonar parísarhopp við Kópavogsskóla og verður hluti verksins endurgert í Gerðarsafni 11. maí, en í smáforritinu virkjast verkið með hreyfimyndum, skapandi verkefnum og umræðuspurningum. Forritið og frekari upplýsingar má finna á www.oraviddir.i
15.30-16.30. Erindi á neðri hæð. 
Hvað er árangursríkt í viðtölum og yfirferðum í myndlistarkennslu á framhalds- og háskólastigi?
Elín Helena Evertsdóttir
Erindi 30 mín.
 
16.00-16.30
Sköpun og skapandi ferli til valdeflingar: námskeiðið Regnbogapönk fyrir 10-12 ára krakka í félagsmiðstöð
Rúna Vala Þorgrímsdóttir
Fyrirlestur 30 mín.
 
Allur dagurinn. Neðri hæð.
Snjóskúlptúrgerð í Lapplandi
Sigrún Guðmundsdóttir
Ljósmyndir og texti, sýnining.

Viðburðirnir eru öllum opnir og ókeypis.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
apr
Salurinn
20:00

KLARA ELÍAS

20
apr
Gerðarsafn
21
apr
Salurinn
23
apr
Bókasafn Kópavogs
24
apr
Bókasafn Kópavogs
24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Bókasafn Kópavogs
04
maí
Salurinn
06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

20
apr
Gerðarsafn
24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Gerðarsafn
27
apr
Gerðarsafn

Sjá meira