18.mar 2026 18:00 - 19:00

Fyrirlestur | Studio Studio um Dieter og Hörð

Gerðarsafn

Gerðarsafn

„Þegar Dieter heimsótti Hörð og sýndi honum verk sín áttaði Hörður sig strax á því að verið væri að flytja inn allra nýjustu hugmyndir í grafískri hönnun og myndlist.“

Verið velkomin á fyrirlestur Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir) um samstarf og áhrif Dieter Roth og Harðar Ágústssonar þann 18. mars klukkan 18:00. Þau eru sýningarstjórar sýningarinnar Hörður ásamt Brynju Sveinsdóttur.

Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Í formrænni könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.

Arnar útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands. Hann hefur síðan starfað á ýmsum sviðum bæði erlendis og á Íslandi, auk þess er hann stundakennari við Listaháskóla Íslands og Ljósmyndaskólann.

Birna útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands og er með meistaragráðu í bókahönnun frá Háskólanum í Reading. Hún starfar nú sem prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09
mar
Bókasafn Kópavogs
10
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Salurinn
20:00

Til Manuelu

11
mar
Gerðarsafn
12
mar
Bókasafn Kópavogs
12
mar
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

11
mar
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira