18.apr 2026 14:00 - 15:00

Fyrirlestur | Studio Studio um grafíska hönnun Harðar

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið velkomin á fyrirlestur Studio Studio (Arnars Freys Guðmundssonar og Birnu Geirfinnsdóttur) um grafíska hönnun Harðar þann 18. apríl klukkan 14:00.

„Hörður Ágústsson (1922–2005) átti afkastamikinn feril á sviði grafískrar hönnunar og er óhætt að telja hann á meðal helstu braut ryðjanda nýrra hugmynda í grafískri hönnun á Íslandi. Hann lagði einnig mikilvægan grunn að skrásetningu á sögu grafískrar hönnunar hérlendis.“

 –úr texta Birnu Geirfinnsdóttur, Andrými flatarins, í sýningarskrá.

Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur bar með sér löngun til að má út skil á milli ólíkra listgreina til að finna sameiginlegan og margslunginn kjarna sjónmenningar.

Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Verkin á sýningunni þvera það sem hefðbundið væri flokkað sem myndlist og hönnun sem tengja fullkláruð verk, undirbúningsverk og hugmyndavinnu saman.  Í þessari formrænu könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.

Sýningarstjórn sýningarinnar er í höndum Brynju Sveinsdóttur og Studio Studio.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
sep
Bókasafn Kópavogs
29
sep
Bókasafn Kópavogs
29
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
30
sep
Bókasafn Kópavogs
01
okt
Salurinn
20:30

Una Torfa

01
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

Sjá meira