23.apr 12:15 - 13:00

Gervigreind og tónlist – hvað er að gerast?

Salurinn

Gervigreind hefur ruðst inn í líf okkar allra á síðustu tveimur árum. Hún er nú notuð í tónlist á ýmsum sviðum og hefur skapað ýmsa möguleika en einnig vandamál sem þarf að takast á við. Spurningar um sköpun, innblástur og tjáningu koma upp, en einnig hvernig þessi nýja tækni okkar getur hjálpað við hugmyndavinnu og sköpun.

Í Menningu á miðvikudögum mun Þórhallur Magnússon, rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í tónlist við University of Sussex fara yfir langa sögu gervigreindar í tónlist, kynna nýjustu uppgötvanir og spila tóndæmi. Framsagan verður gagnvirk og vonast er eftir fjörugum umræðum.

Viðburðurinn fer fram í forsal Salarins. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Um Þórhall Magnússon

Þórhallur Magnússon er rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í tónlist við University of Sussex. Hann stýrir Intelligent Instruments verkefninu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknarefni hans eru meðal annars tónlistarflutningur, spuni, ný tækni við tjáningu tónlistar, lifandi forritun, nótnaskrift, gervigreind og tölræn sköpun. Hann hefur gefið út bækurnar Sonic Writing: Technologies of Material, Symbolic and Signal Inscription sem gefin var út hjá Bloomsbury Academic og Live Coding: A User’s Manual hjá MIT Press.

Menning á miðvikudögum er styrkt af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

***

rtificial intelligence has invaded all of our lives in the last two years. It is now used in music in various fields and has created various possibilities but also problems that need to be addressed. Questions about creativity, inspiration and expression arise, but also how this new technology of ours can help with ideation and creation.

In Culture on Wednesdays, Þórhallur Magnússon, Research Professor at the University of Iceland and Professor of Music at the University of Sussex, will review the long history of artificial intelligence in music, present the latest discoveries and play musical examples. The presentation will be interactive and lively discussions are hoped for. The talk is in Icelandic.

The event will take place in the foyer of Salurinn. Admission is free and all are welcome.

***

Þórhallur Magnússon

Þórhallur Magnússon is a Research Professor at the University of Iceland and Professor of Music at the University of Sussex. He directs the Intelligent Instruments project at the School of Humanities at the University of Iceland. His research interests include music performance, improvisation, new technologies for musical expression, live programming, musical notation, artificial intelligence, and computational creativity. He has published Sonic Writing: Technologies of Material, Symbolic and Signal Inscription, published by Bloomsbury Academic, and Live Coding: A User’s Manual, published by MIT Press.

Culture on Wednesdays is supported by the Cultural and Humanities Committee of Kópavogur.

Deildu þessum viðburði

05
feb
Bókasafn Kópavogs
05
mar
Bókasafn Kópavogs
07
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

27
jan
01
feb
Bókasafn Kópavogs
30
jan
Bókasafn Kópavogs
30
jan
Bókasafn Kópavogs
30
jan
Bókasafn Kópavogs
17:00

Matarnýting

30
jan
Bókasafn Kópavogs
31
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

01
feb
Bókasafn Kópavogs
01
feb
Bókasafn Kópavogs
03
feb
Bókasafn Kópavogs
slökunarjóga
03
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

06
feb
Salurinn
07
feb
Salurinn
09
feb
Salurinn
15
feb
Salurinn
21
feb
Salurinn
22
feb
Salurinn
23
feb
Salurinn
23
feb
Salurinn

Sjá meira