15.apr 2026 12:15 - 13:00

Hvað er kyn? Erfðafræði, þroskun og líffræði kynbundinna einkenna

Náttúrusafn Kópavogs

Náttúrusafn Kópavogs

,,Hvað er“ er erindaröð á vegum Náttúrusafns Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli.

Í erindinu verður skýrir Arnar Pálsson prófessor við Háskóla Íslands á aðgengilegan máta hvað kyn er í líffræðilegum skilningi þess orðs og hvers vegna það er flóknara og fjölbreyttara fyrirbæri en margir gera sér grein fyrir.

Kynæxlun er stunduð af heilkjörnunum, og finnst meðal þeirra margvísleg tilbrigði í gerðum kynfruma og fjölda gerða (mökunargerða eða kyns).

Algengast er að finna tvö megin kyn, sem eru fær um að stunda kynæxlun og viðgang hverrar tegundar. En kyn er flókið fyrirbæri sem tengist mismun í kynfrumum, innri og ytri byggingu líkama og meðal dýra taugar og skynfæri sem móta kynvitund og kynhneigð. Fjöldi þessara einkenna og fjölbreytileiki í þeim milli einstaklinga veldur því að skilgreining á kyni er vandkvæðum bundin, sama hvort við leggjum upp með skýrt afmörkuð kyn eða róf kyntengdra einkenna. Fjallað verður um þessi mál með dæmum úr lífríkinu.

Arnar Pálsson er erfðafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Hann hefur doktorspróf í erfðafræði, og hefur rannsakað erfðir, þróun og þroskun og samspil þessara þátta. Til þess hafa Arnar og samstarfsmenn notað ávaxtaflugur, bleikjur, urriða, maura og lúsmý, svo eitthvað sé talið. Hann hefur einnig svarað nokkrum spurningum fyrir vísindavef HÍ um ólík efni.

https://www.visindavefur.is/hofundur/1508/arnar-palsson
https://uni.hi.is/apalsson/IS

Aðgangur er ókeypis.
Öll velkomin!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

Náttúrusafn Kópavogs

21
okt
Gerðarsafn
23
okt
Náttúrusafn Kópavogs
23
okt
Náttúrusafn Kópavogs
07
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
18
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
05
des
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira