Fræðsla og spjall um getnaðarvarnir eftir fæðingu. Brjóstagjöf, hormónagetnaðarvarnir og getnaðarvarnir án hormóna. Langtíma- og skammtíma getnaðarvarnir. Kostir og gallar.
Steinunn Zophoníasdóttir er ljósmóðir og starfar bæði við fæðingar á LSH og við kvenheilsu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, þar sinnir hún meðal annars getnaðarvarnarráðgjöf og uppsetningu á getnaðarvörnum.
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.