26.feb 2026 20:00 - 22:00

Gjörningakvöld | Haraldur Jónsson, Sölvi Halldórsson, petals, Gígja Jónsdóttir og Vena Nasrecka

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin á gjörningakvöld Gerðarsafns og Hamraborg Festival þann 26. Febrúar klukkan 20:00.

Fram koma:
Haraldur Jónsson
Sölvi Halldórsson
petals ásamt Sólrúnu Mjöll Kjartansdóttur, Ægi Sindra Bjarnasyni og Ingibjörgu Turchi
Gígja Jónsdóttir og Vena Nasrecka

Sýningarstjórn: Hamraborg Festival / Pétur Eggertsson.
Öll velkomin!

Um listamennina:

Í verkum Haraldar fléttast ólíkar efniskenndir, tungumál og hljóðmyndir saman á margslunginn hátt og birtast áhorfendum sem rýmisverk, hljóðinnsetningar og gjörningar. Þau taka mið af aðstæðum hverju sinni og leitast við að vekja staðaranda með fjölbreyttum inngripum og aðferðum. Verk hans eiga sér stað á stefnumóti ólíkra miðla og bjóða gjarnan upp á virka þátttöku sýningargesta í síbreytilegri merkingarsköpun.

Sölvi Halldórsson er rithöfundur sem skrifar ljóð, gagnrýni og gjörninga. Árið 2025 kom út ljóðabókin Þegar við vorum hellisbúar hjá MÚKK en fyrir handritið hlaut Sölvi nýræktarstyrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta. Þessa dagana syngur hann tenór í kórverkinu Mergur í Tjarnarbíó og vinnur að handriti um umburðarlyndi.

petals er fjölþættur hljóðfæraleikari, tónskáld sem semur hamslausa tónlist, fyrrum ljóðskáld og höfundur verkanna kalimba, marsh-river-raft-feather og glee & bless ~ titla sem gefnir voru úr af guillemot press. petals hefur áhuga á köttum, bjöllum, að spila ákaft (líkt og líf hennar og þitt lægi við), spuna og því að safna hljóðum og áferðum sem virðast ekki eiga samleið. petals nýtur þess að búa til blómaskreytingar og lampa.

Gígja Jónsdóttir er danslistamaður og vinnur verk sín í ólíka miðla svo sem gjörninga, dansverk, tónlist, vídeó og innsetningar. Hún hefur samið fjölda sviðsverka og gjörninga, tekið þátt í myndlistarsýningum, skipulagt viðburði og séð um sýningarstjórnun. Hún hefur einnig unnið í samstarfi við fjölda listamanna og dansað og komið fram í dansverkum, sviðsverkum og gjörningum.

Vena Naskrecka er þverfagleg listakona sem vinnur á mörkum hreyfingar, gjörningslistar, samfélagsleikhúss og staðbundinna innsetninga. Hún útskrifaðist frá Munster Technological University í Cork og Minerva Academy í Groningen. Í verkum sínum sameinar hún listræna rannsókn við vísindaleg og hugvísindaleg sjónarhorn, oft í samstarfi við aðra listamenn og fræðafólk.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
feb
Bókasafn Kópavogs
19
feb
Bókasafn Kópavogs
19
feb
Bókasafn Kópavogs
19
feb
Gerðarsafn
19
feb
Gerðarsafn
19
feb
19
feb
Náttúrusafn Kópavogs
19
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

19
feb
Gerðarsafn
19
feb
Gerðarsafn
28
feb
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira