11.okt 2025 13:00 - 15:00

Glæðum sögurnar lífi

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | 1. hæð

Glæðum sögurnar lífi – teiknismiðja með Bergrúnu Írisi mynd- og rithöfundi

Börn og fjölskyldur koma saman og teikna myndir upp úr sögum og ævintýrum með Bergrúnu Írisi. 

Notaleg fjölskyldusmiðja þar sem börnum gefst kostur á að hitta rithöfund og teiknara og glæða sínar eigin sögur lífi í skemmtilegri teiknismiðju. Hægt er að teikna myndir upp úr uppáhaldsbókunum sínum, uppáhaldsævintýrinu, nú eða búa til sína eigin sögu og sögupersónur.

Smiðjan fer fram á jarðhæð aðalsafns á milli 13:00 og 15:00. Hægt verður að koma við þegar hverjum og einum hentar og dvelja lengi eða stutt eftir aðstæðum. 

Aðgengi er gott. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin. Gert er ráð fyrir að börn séu í fylgd með forráðafólki.

Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira