Glimmerjól, jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs, verða haldnir í Hjallakirkju í Kópavogi þann 3. desember næstkomandi klukkan 17.00.
Í kórnum eru tæplega 50 konur sem syngja undir stjórn Margrétar Eirar. Sérstakur gestasöngvari tónleikanna í ár verður Bjarni Arason stórsöngvari sem mun syngja vel valin jólalög ásamt kórnum. Að venju verður einvalalið tónlistarfólks með okkur í för sem sér um að slá hinn sanna jólatakt. Ingvar Alfreðsson leikur á píanó, Róbert Þórhallsson á rafbassa og Ólafur Hólm á trommur.
Við lofum einstakri glimmer jólastemmningu og hlökkum til sjá ykkur öll!
Miðaverð: 3000 kr.
Ónúmeruð sæti.