31.okt 12:15 - 12:45

Hádegisjazz FÍH

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Annað árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.

Á þessum hádegistónleikum koma fram þau Villi Ósk, Rósalind Sigurðardóttir og Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis.

Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Ósk Vilhjálms, eða Villi Ósk eins og hán er jafnan kallað, hefur verið að syngja opinberlega í kórum, leikhúsum, sem einsöngvari og bakrödd, allt frá grunnskólaaldri. Villi Ósk leggur nú stund á nám rytmískum söng við Tónlistarskóla FÍH, þar sem hán dýpkar skilning sinn á tónlist og söng, og leggur þar aðaláherslu á jazzsöng. Meðal stærri verkefna háns síðustu ár var þátttaka í sýningunni „Góða ferð inn í gömul sár“ í Borgarleikúsinu, bakrödd í Söngvakeppni sjónvarpsins og í Eurovision, leikari í sjónvarpsþáttunum „Flamingo Bar“ sem dragdrottningin Suzy, að ógleymdu tónleikaröðinni „Hinsegin jazz“, þar sem hinsegin tónskáldum og flytjendum er fagnað.

**

Rósalind Sigurðardóttir stundaði í bernsku nám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, lærði þar á píanó og fiðlu. Söngurinn heillaði alltaf mest en það var ekki fyrr en í kringum fertugt að hún fór að eltast við þann gamla draum. Rósalind hefur lokið grunn- og framhaldsnámskeiði í Complete Vocal Technique og stundar nú miðnám í rytmískum söng við Tónlistarskóla  FÍH.

Rósalind vann í tæp tuttugu ár á verkfræðistofu en ákvað í byrjun árs breyta til og starfar nú í iðjuþjálfun á Hrafnistu í Hafnarfirði ásamt því er hún söngkona í kvennabandinu Frænkurnar og syngur í Kór Lindakirkju.

**

Ragnheiður Silja Kristjánsdóttir byrjaði að syngja í barnakór Bústaðakirkju 5 ára gömul og lærði einnig á fiðlu í bærnæsku. Hún hefur sungið í ýmsum kórum meðal annars Kór Menntaskólans í Hamrahlíð og Gospelkór Jóns Vídalíns.

Hún er útskrifaður sjúkraþjálfari frá Háskóla Íslands og hefur síðustu ár lagt stund á söngnám við Tónlistarskóla FÍH og hóf nám á framhaldsstigi síðasta haust. Hún stefnir á að ljúka framhaldsprófi í rytmískum söng vorið 2026.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

22
des
Menning í Kópavogi
13:00

Jólalundur

22
des
Náttúrufræðistofa Kópavogs
23
des
Náttúrufræðistofa Kópavogs
23
des
Gerðarsafn
30
des
Salurinn
03
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

04
jan
Bókasafn Kópavogs
06
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

03
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

04
jan
Bókasafn Kópavogs
06
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
09
jan
Bókasafn Kópavogs
10
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira