26.mar 2026 12:15 - 12:45

Hádegistónar FÍH | Lögin hans KK

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | 2. hæð

Í hádeginu þann 26. mars næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH syngja ljúfa tóna fyrir gesti.

Tónlistarmaðurinn KK á stórafmæli þennan dag og ætla flytjendur því að flytja lög eftir hann.

‐——-

Agnes Sólmundsdóttir er 28 ára vestfirsk söngkona frá Þingeyri í Dýrafirði. Þar hóf hún snemma tónlistarnám á fiðlu og píanó. Hún hefur tekið þátt í ýmsum tónlistarverkefnum í gegnum tíðina. Hún söng og spilaði á fiðlu með hljómsveitinni WAYWARD, var meðlimur Gospelkórs Jóns Vídalíns en síðustu ár hefur hún mikið starfað sem bakraddasöngkona t.a.m í þáttaröðunum Kvöldstund með Eyþóri Inga á Stöð 2,  Tribute tónleikum RIGG viðburða „George Michael Sextugur“, stórafmælistónleikum Herberts Guðmundssonar ofl. 

Agnes hóf nám í rytmískum söng við Tónlistarskóla FÍH árið 2022. Hún lauk miðprófi haustið 2024 og er nú á framhaldsstigi.

——–

Bríet Vagna er 22 ára gömul vestfirsk söngkona sem stundar nám við Tónlistarskóla FÍH. Bríet hóf gítar- og söngnám við tónlistarskóla Ísafjarðar árið 2017 en fluttist til Reykjavíkur árið 2022 til að hefja nám við tónlistarskóla FÍH. Tónlist hefur alltaf verið stór partur af hennar lífi og nýtur hún sín hvergi betur en þegar hún spilar á gítar og syngur. Hún hefur komið fram á ýmsum viðburðum bæði opinberlega og í einkasamkvæmum. 

Bríet Vagna stefnir á að ljúka framhaldsprófi í rytmískum söng nú í vor.

——–

Þórunn Freyja er 24 ára söngkona úr Reykjavík, hún hefur sungið frá því hún man eftir sér og fór að koma fram á seinni árum í grunnskóla. Síðan þá hefur hún tekið að sér allskonar veislur og athafnir.

Þórunn lærði á píanó á yngri árum en hætti því þegar áhuginn færðist meira yfir í sönginn. Hún hóf nám við söngdeild FÍH 2024 en hafði áður prófað eina önn í klassískum söng.

 

Þriðja árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.
Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Náttúrusafn Kópavogs
18
mar
Náttúrusafn Kópavogs
20
mar
Salurinn
20
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
mar
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
20
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
mar
Bókasafn Kópavogs
23
mar
Bókasafn Kópavogs
24
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs
25
mar
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira