14.okt 2026 12:15 - 13:00

Hljóðvefur um Valgerði: Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv

Gerðarsafn

Verið velkomin á tónlistarflutning Páls Ragnars Pálssonar og Tui Hirv inn í yfirlitssýningu Valgerðar Briem miðvikudaginn 14. október frá 12:15-13:00.

Aðgangur ókeypis og öll velkomin

Páll Ragnar Pálsson, gítarleikari og tónskáld, og Tui Hirv, söngkona og tónlistarfræðingur, ólust upp í sitthvorum heiminum, hann í íslensku rokksenunni með öllu því frelsi og leikgleði sem henni fylgdi, og hún í strang-akademísku skólakerfi Eistlands og kórmenningu. Leiðir þeirra lágu saman í tónlistarakademíunni í Tallinn og hafa síðan þá unnið saman að listsköpun, þar sem Tui hefur flutt tónverk Páls bæði hér og erlendis.

Lögin sem Tui og Páll Ragnar flytja á tónleikunum eru af væntanlegri pötu þeirra, Layers, sem gefinn er út af Sono Luminus þann 23. október næstkomandi. Á plötunni eru útsetningar Tui og Páls á gömlum trúarlegum þjóðlögum, flest þeirra frá Eistlandi, en einnig frá norðurlöndum og Bretlandi. Lögin hafa verið sungin í hundruði ára og mótast eftir flytjendum og aðstæðum. Nafn plötunnar vísar þannig til uppruna laganna og hvernig þau hafa átt sér sín ólíku líf í gegnum tíðina.

Valgerður vann oft lagskipt í sinni myndlist þar sem hún bætti einu lagi ofan á annað og leyfði ferlinu að ráða för. Páll og Tui vinna tónlist sína á sambærilegan og heiti plötunnar Layers er dregið af þeirri nálgun. Á kápu plötunnar er mynd af verki úr seríunni Landlit eftir Valgerði Briem.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

13
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Salurinn
14
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

14
okt
Bókasafn Kópavogs
15
okt
Salurinn
15
okt
Bókasafn Kópavogs
15
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

Sjá meira

Gerðarsafn

22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn

Sjá meira