26.ágú 2023 13:00

Hver ertu, helvítið þitt?

Menning í Kópavogi

Sali Thai Restaurant

Bak við glerið eru þau Karl, taugaóstyrkur eignmaður Katrínar sem er kulnuð að rótum, ásamt Kjartani rafvirkja. Þar bíða þau færis að komast út og eru í stöðugu sambandi við boxarann Köru. Kara stendur í orustu við skuggann sjálfan, skepnuna sem fyrir utan.

Hver ertu, helvítið þitt? er leikið verk. Það leyfir áhorfandanum að sjá berum augum hvað gerist þegar skepnan innra með okkur raungerist í ytri heimum. Verkið fæst við kunnuglegt stef sem er vel kannað innan djúpsálarfræðinni. Inntak og fagurfræði verksins talar til tveggja kerfa, þess meðvitaða og þess ómeðvitaða og hreyfir við spurningunni um hið góða og illa.

Ingibjörg Magnadóttir vinnur einna helst með gjörningaformið í list sinni og hefur þróað leikhús-tengd verk, sem sameina svið gjörningsins, hefðbundins og tilraunakennds leikhúss. Hún skrifar sjálf handrit verka sinna, ýmist ein eða í samstarfi við aðra listamenn, og leggur áherslu á að sýningin sé heildarverk, þar sem sviðsmynd, búningar, texti, hreyfingar, hljóð eiga jafnan þátt í að skapa upplifunina.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

11
maí
Bókasafn Kópavogs
11
maí
16
maí
Bókasafn Kópavogs
12
maí
Bókasafn Kópavogs
13
maí
Bókasafn Kópavogs
13
maí
Salurinn
13
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Salurinn
20:00

Improvision

14
maí
17
maí
Salurinn
25
maí
30
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Menning í Kópavogi

20
maí
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira