29.maí 2026 19:00 - 21:30

Jeremy Deller: Kvikmyndasýning: Our Hobby is Depeche Mode (2008) & Everybody in the Place (2018)

Gerðarsafn

Salurinn

Verið velkomin á kvikmyndasýningu á verkunum Everybody in the Place: An Incomplete History of Britain 1984-1992 (2018) og Our Hobby is Depeche Mode (2008) eftir Jeremy Deller í Salnum þann 29. Maí klukkan 19:00.

Í kvikmynd Dellers Everybody in the Place: An Incomplete History of Britain 1984-1992 (2018) sýnir Deller fram á tengingar milli reif-menningar og mótmæla. Hvernig grasrót tengist pólitísku landslagi og borgaralegri óhlýðni; sérstaklega í Norður-Englandi með ólöglegum danshátíðum sem voru haldnar í yfirgefnum verksmiðjum, þar sem ungt fólk bókstaflega dansaði árústum iðnaðaraldar.
Kvikmyndin er í formi fyrirlestrar þar sem Deller ræðir við hóp ungs fólks í gagnfræðiskóla og býður þeim að túlka viðfangsefnið og skapa sína eigin merkingu. Verkið sýnir kennslu nálgun Dellers, þar sem hann fangar flóknar hugmyndir og miðlar þeim á grípandi hátt.

Our Hobby is Depeche Mode (2008) fjallar um hvernig fólk þróar náin tengsl við popp tónlist, aðlagar hana og notar í eigin lífi. Eins og einn af fjölmörgum aðdáendum þeirra segir, „Það hljómar fáránlega en þetta er áhugamálið okkar. Depeche Mode er ekki bara ástríða. Annað fólk fer í ræktina eða stundar íþróttir. Áhugamál okkar er Depeche Mode.“ Jeremy Deller leikstýrði verkinu ásamt Nick Abrahams en þeir ferðuðust til Rússlands, Mexíkó, Bandaríkjana, Þýskalands, Rúmeníu, Íran, Brasilíu, og Kanödu til þess að mynda aðdáendur bresku syntha hljómsveitarinnar frá Basildon.

Aðgangur ókeypis og öll velkomin!

Meðfylgjandi mynd er birt með leyfi listamannsins og The Modern Institute/ Toby Webster Ltd., Glasgow

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

21
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira