Langur fimmtudagur
Guðný Ósk Laxdal er sérfræðingur í málefnum kóngafólks og er með Instagram-reikninginn Royal Icelander þar sem hún deilir reglulega fréttum og fróðleik um konungsfjölskyldur heimsins. Hún skrifaði BA-ritgerð sína um nútímavæðingu bresku konungsfjölskyldunnar og er oft álitsgjafi fjölmiðla á Íslandi um það sem er að gerast í konunglega heiminum.
Te og breskar veitingar í boði. Frítt inn og öll velkomin.
Á fyrirlestrinum mun hún fjalla um það helsta sem er að frétta í bresku konungsfjölskyldunni í dag og fara t.d. yfir veikindin hjá Karli og Katrínu. Einnig mun hún ræða hvað Harry og Meghan eru að gera núna og koma með kenningar um hvernig sambandið er á milli þeirra og konungsfjölskyldunnar. Fyrirlesturinn mun einnig fara yfir hvað er það sem konungsfjölskyldan gerir í nútímasamfélagi og munum við kannski kíkja á aðrar konungsfjölskyldur í Evrópu til að bera saman við þá bresku.
Hvetjum öll sem vilja til að mæta með hatta.