Fjörugasti og fjölskylduvænasti skemmtistaðurinn verður opinn á Bókasafni Kópavogs á Safnanótt þar sem öll fjölskyldan kemur saman til að hafa gaman og syngja karókí.
Á staðnum verður:
-Karókí
-Poppvél
-Myndakassi
-Diskóljós
Ekki missa af sannkallaðri partý stemningu fyrir alla fjölskylduna.
Öll velkomin – jafnt ungir sem aldnir.
Viðburðurinn verður haldinn í Tilraunastofunni á fyrstu hæð Bókasafns Kópavogs