09.maí 2026 12:00 - 16:00

Kópurinn | Börnin vísa veginn 

Náttúrusafn Kópavogs

Náttúrusafn | Tilraunastofa

Myndlistasýning

Á sýningunni Börnin vísa veginn má sjá samvinnulistaverk eftir nemendur í 4. bekk úr nokkrum grunnskólum Kópavogs. Verkin urðu til eftir heimsóknir í Gerðarsafn og Náttúrusafn Kópavogs þar sem börnin skoðuðu form og liti, fugla og umhverfið með augum bæði listafólks og vísindafólks. 

Í Gerðarsafni sóttu þau innblástur í verk Harðar Ágústssonar og rannsökuðu form og liti í eigin nærumhverfi. Á Náttúrusafninu beindu þau athyglinni að fuglum safnsins og skoðuðu mynstur, liti og lögun. 

Úr þessu urðu til sameiginleg verk þar sem forvitni, athugun og ímyndunarafl barnanna fá að njóta sín. 

Sýningin verður opnuð með viðhöfn kl. 12:00.   

 

Nánar um verkefnið: 

Börnin vísa veginn erliður í  fræðsluverkefninu Náttúran séð í gegnum linsu myndlistar sem er þverfaglegt samstarfsverkefni milli systursafnanna Náttúrusafnsins og Gerðarsafns – listasafns Kópavogs. Verkefnið hlaut öndvegisstyrk frá Safnasjóði árið 2023 og má segja að það hafi slegið nýjan tón í fræðslu- og miðlunarstarf stofnanna. Verkefniðbyggir á þeim grunni að list og náttúruvísindi séu ekki ólíkar greinar heldur skyld tungumál til að öðlast skilning og túlka heiminn. Í gegnum samstarfið eru börn hvött til að veita nærumhverfinu athygli sem listamenn og vísindamenn í senn. Þau fá tækifæri til að kanna náttúruna í nærumhverfi sínu, kynnast náttúrulegum efniviði, fái að handleika (mold, steina, þörunga), horfa, teikna, flokka, skrásetja og skapa og þannig verður athugun, skynjun og sköpun að einu heildstæðu lærdómsferli. 

Verkefnið nýtir styrkleika hvors safns: sérfræðiþekkingu í náttúruvísindum og myndlist, vinnur markvisst út frá aðalnámskrá og opnar sameiginlegt rými samtals þar sem fræðileg þekking og listræn túlkun mætast í verklegum smiðjum og vettvangsverkefnum. Með þessari aðferðafræði hefur samstarfið getið af sér fimm fjölbreytt verkefni og skapandi nálgun í náttúrufræðikennslu, sem eiga að henta í list- og náttúrufræðikennslu í skólum jafnt sem söfnum. Verkefnin eru til þess fallin að auðvelt er að móta þau eftir aldri, umhverfi, árstíðum og efni. 

English: 
Children Lead the Way 
Art Exhibition 
Kópavogur Nature Museum / Lab | 12:00–16:00 

The exhibition Children Lead the Way presents collaborative artworks by fourth-grade students from several primary schools in Kópavogur. The works grew out of visits to Gerðarsafn and the Kópavogur Nature Museum, where children explored shapes and colours, birds and the natural environment through the eyes of both artists and scientists. 

At Gerðarsafn, they drew inspiration from the work of Hörður Ágústsson, exploring form and colour in their own surroundings. At the Nature Museum, they turned their attention to the museum’s birds, observing patterns, colours and shapes. 

The result is a series of collective artworks where children’s curiosity, observation and imagination come vividly to life. 

The exhibition opens with a special opening event at 12:00. All are welcome! 

Krakkahátíðin Kópurinn 2026 
 
Hefur þú heyrt um heimsins mest listelskandi kóp? 
Hann býr auðvitað í Kópavogi!  
 
Kópurinn er krakkahátíð þar sem boðið er upp á ókeypis listviðburði og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.  

Komdu og njóttu þess að hlusta á geggjaða tónlist, horfa á skemmtilegar leik-, dans- og sirkus-sýningar og taktu þátt í smiðjum sem virkja sköpunargáfuna.  

Allir viðburðirnir fara fram milli kl. 12 og 16 laugardaginn 9. maí í menningarhúsunum í Kópavogi og aðgangur er ókeypis.  

Verið öll hjartanlega velkomin, stór sem smá!  

Deildu þessum viðburði

09
maí
Salurinn
09
maí
Náttúrusafn Kópavogs
09
maí
Bókasafn Kópavogs
09
maí
Menning í Kópavogi
09
maí
Salurinn
09
maí
Bókasafn Kópavogs
09
maí
Gerðarsafn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
apr
Bókasafn Kópavogs
28
apr
Salurinn
28
apr
Salurinn
28
apr
Salurinn
29
apr
Bókasafn Kópavogs
29
apr
Salurinn
29
apr
Salurinn
29
apr
Salurinn
29
apr
Salurinn

Sjá meira

Náttúrusafn Kópavogs

02
maí
Náttúrusafn Kópavogs
12:00

Fjöruferð

06
maí
Náttúrusafn Kópavogs
07
maí
Bókasafn Kópavogs
09
maí
Náttúrusafn Kópavogs
20
maí
Náttúrusafn Kópavogs
20
maí
Náttúrusafn Kópavogs

Sjá meira