09.maí 2026 12:45 - 13:00

Kópurinn | Krakkafyrirlestur um seli

Náttúrusafn Kópavogs

Náttúrusafn Kópavogs

Náttúrusafnið kl. 12:45-13:00 og 14:45-15:00 

Komdu og kynnstu selum með Hlyni Steinssyni líffræðingi á Náttúrusafni Kópavogs. Hlynur segir frá lífi sela við Íslandsstrendur og deilir fróðleik um þessi forvitnilegu og skemmtilegu dýr. 

Forfeður sela lifðu á þurru landi alveg eins og við mannfólkið en síðan ákváðu selirnir að halda út á haf.  Síðan hafa liðið milljónir ára og selirnir hafa tekið miklum breytingum bæði í útliti og hegðun og þeir hafa aðlagast lífi í sjó. Hverskonar líkama þarf maður að hafa til að geta lifað í köldum sjónum við strendur Íslands? 

Og af hverju heitir Kópavogur Kópavogur?  

 

Enska
Seal Talk for Children 
Nature Museum | 12:45–13:00 and 14:45–15:00 

Come and meet the seals with biologist Hlynur Steinsson from the Kópavogur Nature Museum. Hlynur shares fascinating facts about the lives of seals along Iceland’s shores and introduces these curious and playful animals. 

The ancestors of seals once lived on land, just like humans, before making their way out to sea. Over millions of years they have changed in both body and behaviour to adapt to life in the ocean. What kind of body do you need to survive in the cold waters around Iceland? 

And why is Kópavogur called Kópavogur (Seal Cub Bay)? Come and find out! 

Krakkahátíðin Kópurinn 2026 
 
Hefur þú heyrt um heimsins mest listelskandi kóp? 
Hann býr auðvitað í Kópavogi!  
 
Kópurinn er krakkahátíð þar sem boðið er upp á ókeypis listviðburði og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.  

Komdu og njóttu þess að hlusta á geggjaða tónlist, horfa á skemmtilegar leik-, dans- og sirkus-sýningar og taktu þátt í smiðjum sem virkja sköpunargáfuna.  

Allir viðburðirnir fara fram milli kl. 12 og 16 laugardaginn 9. maí í menningarhúsunum í Kópavogi og aðgangur er ókeypis.  

Verið öll hjartanlega velkomin, stór sem smá!  

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

21
maí
Bókasafn Kópavogs
21
maí
Bókasafn Kópavogs
22
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

23
maí
Gerðarsafn
24
maí
Salurinn
24
maí
Salurinn
26
maí
Bókasafn Kópavogs
26
maí
30
maí
Bókasafn Kópavogs
27
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Náttúrusafn Kópavogs

03
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
01
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
22
júl
Bókasafn Kópavogs
29
júl
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira