Perlur, borðar og smáhlutir fá nýtt líf í töskuskartsmiðju BoskBoskBosk í Gerðarsafni. Undir handleiðslu hönnuðarins Berglindar Óskar Hlynsdóttur búa þátttakendur til sitt eigið töskuskart; persónulegan grip sem gefur hvaða tösku sem er skemmtilegan karakter.
Unnið er með fjölbreytt efni og endurnýttan efnivið í samstarfi við Góða hirðinn. Smiðjan er opin öllum aldri og hentar jafnt þeim sem vilja föndra fínt og þeim sem vilja fara aðeins út fyrir kassann. Allur efniviður er á staðnum og smiðjan er án endurgjalds.
English
Bag Charm Workshop with BoskBoskBosk
Beads, ribbons and found objects are given new life in BoskBoskBosk’s bag charm workshop at Gerðarsafn. Guided by designer Berglind Ósk Hlynsdóttir, participants create their own bag charm — a personal accessory that can add character to any bag.
Using a variety of materials, including reused materials in collaboration with Góði hirðirinn, the workshop invites participants to experiment, make something delicate or go a little outside the box.
Open to all ages, all materials are provided and participation is free.
Krakkahátíðin Kópurinn 2026
Hefur þú heyrt um heimsins mest listelskandi kóp?
Hann býr auðvitað í Kópavogi!
Kópurinn er krakkahátíð þar sem boðið er upp á ókeypis listviðburði og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Komdu og njóttu þess að hlusta á geggjaða tónlist, horfa á skemmtilegar leik-, dans- og sirkus-sýningar og taktu þátt í smiðjum sem virkja sköpunargáfuna.
Allir viðburðirnir fara fram milli kl. 12 og 16 laugardaginn 9. maí í menningarhúsunum í Kópavogi og aðgangur er ókeypis.
Verið öll hjartanlega velkomin, stór sem smá!


















