06.feb 2021 13:00

Krakkaleiðsögn með Sprengju-Kötu | Vetrarhátíð í Kópavogi

Gerðarsafn

Sterkir litir, leikgleði, náttúra og vísindi.

Sprengju-Kata verður með krakkaleiðsögn um sýninguna Skúlptúr Skúlptúr í Gerðarsafni en þar sýna Ólöf Helga Helgadóttir og Magnús Helgason verk sín á tveimur einkasýningum.
Sterkir litir, leikgleði, náttúra og vísindi setja mark sitt á sýningarnar Shit hvað allt er gott (Magnús) og Hrist ryk úr steini (Ólöf Helga). Svífandi pylsubrauð, eldrauðar gardínur, þvottavél, plötuspilarar gulir vatnsbrúsar og undraverð segulstál skapa undraveröld og spennandi að fá sýn vísindakonunnar Sprengju-Kötu á það sem ber fyrir augu.
Sprengju-Kata er efnafræðingur og kennir efnafræði við Háskóla Íslands. Í Vísindasmiðjunni sýnir hún grunnskólanemum töfra efnafræðinnar, hún heldur efnafræðinámskeið í Háskóla unga fólksins á sumrin og ferðast um landið með Háskólalestinni á vorin. Hún var vikulegur gestur í þáttum Ævar vísindamanns sem sýndir voru á RÚV og hefur haldið fjöldamargar efnafræðisýningar fyrir börn á öllum aldri.
SKRÁNING HÉR! Skráning er nauðsynleg og einungis einn fullorðinn fylgi hverju barni.
—-
Guided Tour for children around the exhibition Skúlptúr skúlptúr in Gerðarsafn with scientist Sprengju-Kata. Registration necessary. Only one adult per child. The tour will be in Icelandic.
Link: https://www.eventbrite.com/e/krakkaleisogn-me-sprengju-kotu-vetrarhati-i-kopavogi-tickets-138753745187

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

31
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs
05
des
23
des
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

31
okt
01
nóv
Gerðarsafn
01
nóv
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn
06
des
Gerðarsafn

Sjá meira