07.feb 2025 22:00 - 23:00

Kvöldstund með Evu Rún og Höllu Þórlaugu

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | Ljóðahorn 2. hæð

Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir eru rithöfundar, listakonur og listrænir stjórnendur bókmenntahátíðarinnar Queer Situations sem fram fór í fyrsta sinn sumarið 2024 í Salnum í Kópavogi og vakti mikla athygli. Queer Situations er helguð hinsegin bókmenntum í víðu samhengi,  bókum höfunda sem skilgreina sig sem hinsegin en einnig bókmenntum sem falla út fyrir meginstrauminn.

Á Safnanótt bjóða þær Eva Rún og Halla Þórlaug til kvöldstundar á Bókasafni Kópavogs þar sem þær lesa brot úr eigin verkum, útgefnum og í vinnslu auk þess sem þær fjalla um og lesa úr nokkrum af eftirlætis hinsegin bókmenntum. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.

Eva Rún Snorradóttir er sjálfstætt starfandi sviðslistakona, leikskáld og ljóðskáld. Hún hefur um árabil starfað með sviðslistahópunum Kviss búmm bang og 16 elskendur. Eva Rún hefur sent frá sér ljóðabækurnar Heimsendir fylgir þér alla æviTappi á himninum og Fræ sem frjóvga myrkrið sem og sagnasveiginn Óskilamunir. Árið 2019 hlaut hún ljóðaverðlaunin Maístjarnan fyrir bókina Fræ sem frjóvga myrkrið. Árið 2020 var hún valin sem leikskáld Borgarleikhússins þar sem hún vann að verkinu Góða ferð inn í gömul sár sem frumsýnt var í febrúar 2023. Fyrsta skáldsaga Evu Rúnar, Eldri konur kom út 2024 og er tilnefnd til Fjöruverðlaunanna.

Halla Þórlaug Óskarsdóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist árið 2012 og MA gráðu í ritlist við Háskóla Íslands árið 2014. Hún hefur unnið sem dagskrárgerðarmaður á Rás 1, stýrt menningarþáttunum Víðsjá, Tengivagninum og Bók vikunnar, auk þess að sinna umfjöllun um barna- og unglingabækur í þættinum Orð um bækur. Hún sendi árið 2020 frá sér ljóðsöguna Þagnarbindindi sem hún hlaut ljóðaverðlaunin Maístjarnan fyrir.

Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar styrkir Safnanótt í Kópavogi.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

02
nóv
25
apr
Salurinn
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

12
nóv
25
jan
Gerðarsafn
12
nóv
Náttúrufræðistofa Kópavogs
13
nóv
Salurinn
13
nóv
Bókasafn Kópavogs
13
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

13
nóv
Bókasafn Kópavogs
13
nóv
Bókasafn Kópavogs
14
nóv
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

15
nóv
Bókasafn Kópavogs
13:00

Luktasmiðja

15
nóv
Bókasafn Kópavogs
15
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira