20.des 2025 11:00 - 11:30

Langleggur og Skjóða í Lindaskógi

Bókasafn Kópavogs

Lindasafn | Lindaskógur

Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna og kunna margar skemmtilegar sögur úr Grýluhelli. Þau hafa heldur betur slegið í gegn síðustu ár og heimsækja hinar ýmsu jólaskemmtanir með glænýja jólasögu á hverju ári. Í ár segir Skjóða krökkunum sögu sem gerðist einmitt á jólunum. Jólin eru um það bil að fara að ganga í garð þegar Leppalúði pabbi hennar fær skyndilega tröllakvef.

Hver á að elda jólagrautinn?
Getur Skjóða bjargað jólunum?

Sagan er um 20 mínútur að lengd og svo syngja þau vel valin jólalög með krökkunum á eftir. Mörg börn þekkja Skjóðu úr jóladagatali Hurðaskellis og Skjóðu, Jólasögum Skjóðu á Storytel og úr bíómyndinni Jólamóðir.

Leikritið verður haldið utandyra, í rjóðrinu fyrir ofan Lindasafn / Lindaskóla í Núpalind 7, sem kallast Lindaskógur.

Fyrir þau sem koma á bíl: bílastæði eru við Lindaskóla, bæði Núpalindarmegin og Galtalindarmegin.

Fyrir þau sem ferðast með strætó: Leiðir 2 og 28 stoppa í nágrenni við skólann.

Ef snjóar verða einnig nóg af lausum stæðum fyrir sleða og snjóþotur.

Leikritið er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Menning í Kópavogi
18
jún
Salurinn
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
jún
Salurinn
23
jún
Menning í Kópavogi
23
jún
Bókasafn Kópavogs
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

16
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs
19
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

23
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
26
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

30
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira