Grakkarnir ungmennaráð Gerðarsafns bregða á leik á fimmtudagskvöldið 28. október, á löngum fimmtudegi í Gerðarsafni.
Boðið verður upp á skringilegheitamarkað, póstmódernísk listaverk og innsetningar, stórar spurningar – lítil svör, kastboltamálverk og emo listaverk!
Unglingaráð Gerðarsafns, Grakkarnir, störfuðu inni á safninu í sumar með það að leiðarljósi að gera Gerðarsafn unglingavænna og vekja áhuga á list meðal ungs fólks.
Síðasta fimmtudaginn í mánuði er opið til kl. 20 á Gerðarsafni og aðgangur ókeypis frá kl. 17.
Verið öll velkomin!