27.apr 12:15

Leiðsögn listamanna | Menning á miðvikudögum

Gerðarsafn

Fríða Ísberg og Guðlaug Mía Eyþórsdóttir á Stöðufundi.

Fríða Ísberg og Guðlaug Mía Eyþórsdóttir bregða ljósi á verk sín á sýningunni Stöðufundi í Gerðarsafni. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Stöðufundur er verkefni sem veitir innsýn inn í hugarheim og væntingar tíu listamanna sem eru í fararbroddi sinnar kynslóðar. Listamennirnir samanstanda af fimm myndlistarmönnum og fimm rithöfundum sem eru ólíkir innbyrðis en eiga það sameiginlegt að hafa í verkum sínum fjallað um samtímann og stöðu ungs fólks í nútímasamfélagi. Sýningarstjórar eru Kristína Aðalsteinsdóttir og Þorvaldur S. Helgason.
Stöðufundur er þó hvorki samtímaspegill né sögulegt yfirlit heldur kannski frekar eins og GIF-skrá sem spilast aftur og aftur og aftur til eilífðarnóns.
Sérstaða sýningarinnar liggur fremur í fókus hennar á persónulega upplifun listamannanna á sinni eigin fortíð, nútíð og framtíð og listrænni miðlun þess. Þá veitir samþætting listgreinanna tveggja, myndlistar og ritlistar, einstakt tækifæri til að eiga í samtali á þverfaglegum grundvelli og skapar listrænan skurðpunkt sem sýningin hverfist um.
„Neysluhyggja, mörk efniskenndar og líkamleika, yfirvofandi loftslagsvá, eftirsjá, þrá okkar eftir viðurkenningu og tengingu við aðra, auk andlegrar vellíðunar eru ákveðin leiðarstef bókarinnar og sýningarinnar sem fylgir henni heim í hlað.“ – Úr texta Kristínu Aðalsteinsdóttur, sýningarstjóra.
Myndlistarmenn: Auður Ómarsdóttir, Björk Viggósdóttir, Fritz Hendrik IV, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Páll Haukur Björnsson. Rithöfundar: Bergur Ebbi, Fríða Ísberg, Halldór Armand, Jakub Stachowiak, Kristín Eiríksdóttir.

Deildu þessum viðburði

11
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
08
nóv
Bókasafn Kópavogs
15
nóv
Salurinn
22
nóv
Salurinn
29
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
sep
26
okt
Salurinn
20:30

Tvíhöfði

02
okt
07
okt
Bókasafn Kópavogs
03
okt
Bókasafn Kópavogs
04
okt
Bókasafn Kópavogs
04
okt
Bókasafn Kópavogs
05
okt
Salurinn
05
okt
Bókasafn Kópavogs
05
okt
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Salurinn
27
okt
Salurinn
20:30

Sunnanvindur

06
nóv
11
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

Sjá meira