10.des 2025 12:15 - 13:00

Leiðsögn með Agnesi Ársælsdóttur

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið öll hjartanlega velkomin á leiðsögn um sýninguna Skúlptúr skúlptúr performans með Agnesi Ársælsdóttur miðvikudaginn 10. desember kl. 12.15 í Gerðarsafni.

Agnes Ársælsdóttir er myndlistarmaður og sýningarstjóri sem leggur áherslu á gjörninga og aðra lifandi miðla. Hún útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2018 og MA gráðu í Sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2025. Í námi sínu vann Agnes rannsókn í samstarfi við Nýlistasafnið sem bar heitið Hvar eru gjörningarnir geymdir? þar sem hún leitaðist við að finna upplýsingar um alla gjörninga sem hafa verið framdir á Íslandi og reyna þannig að varðveita sögu þessa hverfula forms sem rennur okkur sífellt úr greipum.

Líf okkar samanstanda af óteljandi umbreytingum – stórum eða smáum, hljóðlátum eða yfirþyrmandi. Við göngum í gegnum þessar umskiptingar, þar sem tilfinningar brjótast fram án viðvörunar – og eitthvað óáþreifanlegt byrjar að titra.

Í sjöttu sýningu Skúlptúr skúlptúr raðar Gerðarsafns mæta gjörningar höggmyndalist. Er þar listsköpun fundinn staður mitt í þessum umbreytingastundum, þar sem við vitum ekki hvar eitt endar og annað hefst – þar sem form, tilfinningar og merkingar fljóta um án þess að festa rætur. Listafólk sýningarinnar bregst við þessum umbreytingum með viðkvæmni, leikgleði, fögnuði og von – og réttir fram hönd hvað til annars, aftur til fortíðarinnar og hvísla mjúklega óskum til framtíðarinnar.

Listafólk sýningarinnar eru Curro Rodriguez, Hekla Dögg Jónsdóttir, Jasa Baka, Kristín Helga Ríkharðsdóttir, Mjólk (Hlín Gylfadóttir, Karlotta Blöndal, Unnar Örn Jónasson Auðarson), Post Performance Blues Band (Álfrún Örnólfsdóttir, Hrefna Lind Lárusdóttir, Saga Kjerúlf), Regn Sólmundur Evu og Styrmir Örn Guðmundsson. Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði og Myndstef.

Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði og Myndstef.

Hádegisleiðsögnin er liður í viðburðaröðinni Menning á miðvikudögum sem er styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Aðgangur er ókeypis.

Deildu þessum viðburði

02
sep
Bókasafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Salurinn
12:15

Lay Low

04
nóv
Bókasafn Kópavogs
02
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
júl
10
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

14
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

06
júl
10
júl
Gerðarsafn

Sjá meira