07.okt 2026 12:15 - 13:00

Leslyndi | Bergrún Íris Sævarsdóttir

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Bergrún Íris Sævarsdóttir verður gestur Leslyndis 7. október. Bergrún er fædd árið 1985 og býr í Hafnarfirði ásamt fjölskyldu sinni. Hún útskrifaðist með BA gráðu í listfræði úr Háskóla Íslands 2009, lauk diplómanámi í teikningu frá Myndlistaskólanum í Reykjavík vorið 2012 og sótti sumarskóla í barnabókagerð í Anglia Rushkin, Cambridge School of Art. 

Bergrún hefur alltaf haft áhuga á barnabókum en sá áhugi fékk byr undir báða vængi þegar hún varð móðir haustið 2009. Hún hefur myndlýst fjölda barnabóka og námsefni, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum.

Fyrsta bók Bergrúnar sem rithöfundur var barnabókin Vinur minn, vindurinn sem kom út hjá Bókabeitunni haustið 2014 og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Barna- og unlgingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bók hennar Langelstur að eilífu hlaut Barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins og Íslensku Bókmenntaverðlaunin. Þá var hún fyrst til þess að hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur árið 2019 fyrir bók sína Kennarinn sem hvarf. 

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk; orðið er frjálst. 

Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum. 

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. 

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
02
des
Bókasafn Kópavogs
16
des
Salurinn
12:15

Lay Low

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira