23.sep 2018 15:00

Listamannaspjall | SKÚLPTÚR/SKÚLPTÚR

Gerðarsafn

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir mun ræða verk sín á sýningunni.

Sunnudaginn 23. september kl. 15:00-16:00 fer fram listamannaspjall með Áslaugu Írisi Katrínu Friðjónsdóttur.  Á sýningunni SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR býður safnið samtímalistamönnum að ganga inn í sýningu Gerðar Helgadóttur undir hatti sýningarraðarinnar. Með því er gerð tilraun til að draga fram skúlptúrinn í samtímanum, ekki einungis sem mikilvægum hluta listasögunnar heldur einnig sem lifandi sjónrænu tungumáli samtímalistarinnar. Listamenn sýningarinnar í ár eru Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Steinunn Önnudóttir, Styrmir Örn Guðmundsson og Gerður Helgadóttir.
Verk Áslaugar eiga sterkar rætur í byggingariðnaði og skapa jafnframt hugrenningartengsl við borgarlandslagið hvað varðar efnisval, liti, form og næmt auga listamannsins fyrir umhverfi sínu.
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og lauk síðar mastersnámi frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áslaug hefur tekið þátt í samsýningum heima og erlendis. Auk sýningarhalds hefur hún tekið þátt í margs konar verkefnum.
 
Aðgangur á safnið gildir á viðburðinn.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira

Gerðarsafn

21
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira