Sunnudaginn 26. ágúst kl. 15:00-16:00 fer fram listamannaspjall með Jóhönnu Kristbjörgu Sigurðardóttur.
Á sýningunni SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR býður safnið samtímalistamönnum að ganga inn í sýningu Gerðar Helgadóttur undir hatti sýningarraðarinnar. Með því er gerð tilraun til að draga fram skúlptúrinn í samtímanum, ekki einungis sem mikilvægum hluta listasögunnar heldur einnig sem lifandi sjónrænu tungumáli samtímalistarinnar.
Listamenn sýningarinnar í ár eru Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Steinunn Önnudóttir Styrmir Örn Guðmundsson og Gerður Helgadóttir.
Aðgangur á safnið gildir á viðburðinn.