11.mar 2026 12:15 - 13:00

Litafókus með Eygló Harðardóttur

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Sjónræn skynjun og vangaveltur um afstæði litanna eru grunnstefin í leiðsögn Eygló Harðardóttur um sýninguna Hörður. Fókusnum verður beint að innbyrðis áhrifum lita á hvern annan í völdum verkum Harðar Ágústssonar, litanotkun verkanna borin saman og og ólík lita-áhrif og lita-hlutföll skoðuð.

 Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Í formrænni könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.

Eygló Harðardóttir er myndlistamaður sem leggur áherslu á listafræði í verkum sínum. Hún hefur, frá alamótum, kennt námskeið í litaskynjun og seinna þrívíðri litavinnu bæði við Myndlistaskólann og Listaháskóla Íslands.

Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hérlendis og erlendis. Hún hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin 2019 fyrir einkasýninguna „Annað rými” sem haldin var í Nýlistasafninu 2018. Verk hennar eru varðveitt í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Ríkisútvarpinu, Women’s Studio Workshop í New York, Kultuurikauppila í Finnlandi og The Metropolitan Museum í New York.

Deildu þessum viðburði

04
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Gerðarsafn
08
apr
Bókasafn Kópavogs
06
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Náttúrusafn Kópavogs
05
mar
Bókasafn Kópavogs
06
mar
Gerðarsafn

Sjá meira

Gerðarsafn

06
mar
Gerðarsafn
11
mar
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira