20.sep 17:00

Lokahóf og leiðsögn

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið öll velkomin á lokahóf sýningarinnar Fora, miðvikudaginn 20. september kl. 17 í Gerðarsafni. Miðvikudagurinn er síðasti dagur sýningarinnar. Brynja Sveinsdóttir sýningarstjóri Fora og Rósa Gísladóttir ætla að leiða gesti um sýninguna.

Þegar gengið er inn á sýningu Rósu Gísladóttur vaknar tilfinning um að við séum stödd samtímis á fornum samkomustað og í rústum framtíðarinnar. Í sölunum ríkir ró. Þyngd verkanna veitir okkur jarðtengingu. Eða er hún ógnandi? Súlur sem þessar standa í þúsundir ára, þangað til þær gera það ekki lengur. Verðum við vitni að því augnabliki þegar þær falla?

Verk Rósu eru könnun á geometríu og klassískri formgerð með vísunum í arkitektúr og rússneskan konstrúktivisma. Skúlptúrar hennar spila á mörkum þess klassíska og nútímalega jafnframt í fagurfræði og efnisnotkun. Verk í við, gifs, keramik og gler skapa samspil við umhverfi sitt hvort sem það er staðbundið verk í borgarlandslagi eða skúlptúrar sem hverfast um sýningarrými.

Rósa Gísladóttir (f. 1957) nam myndlist í Þýskalandi, Bretlandi og á Íslandi. Verk hennar hafa verið sýnd víða hérlendis og erlendis, þar á meðal í Scandinavia House í New York, Saatchi Gallery í London, Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg, Listasafni Árnesinga og Berg Contemporary. Hún var fyrsti handhafi Gerðarverðlaunanna 2020, en þau eru veitt árlega framúrskarandi myndlistarmanni sem vinnur með skúlptúr og rýmisverk.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

27
sep
Bókasafn Kópavogs
28
sep
26
okt
Salurinn
20:30

Tvíhöfði

28
sep
Bókasafn Kópavogs
29
sep
Salurinn
20:00

UNA TORFA

30
sep
Salurinn
30
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs
30
sep
07
jan
Gerðarsafn
02
okt
07
okt
Bókasafn Kópavogs
27
okt
Salurinn
20:30

Sunnanvindur

06
nóv
11
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

30
sep
07
jan
Gerðarsafn
01
okt
Gerðarsafn

Sjá meira