17.jún 2026 20:00 ~ 24.ágú 2026 18:00

Lúppa | Consider to be Allies & Kristín Karólína Helgadóttir

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Þriðja útfærsla Lúppu er samtal tveggja vídeóverka sem fjalla á sinn hátt um samspil náttúru og markaðssetningar, umbreytingu, ferðamennsku og þránna til að upplifa eitthvað stórkostlegt.

Verkið Getur þú hugsað í sviðsmyndum? (2022) eftir Kristínu Karólínu Helgadóttur var unnið í námunda við Vatnajökul í lok heimsfaraldurs þar sem draumum, auglýsingum, hamfarahlýnun, samfélagsmiðlum og túrisma ægir saman. Kristín var nýflutt úr hringiðu meginlands Evrópu í dreifbýl Öræfin. Flutningurinn varð kveikja að verkinu sem er leikur að ólíkum sviðsmyndum, spá um hið óorðna, mögulega heimsendi. Verkið var upprunalega unnið fyrir sýninguna Rúllandi snjóbolti í Ars Longa safninu á Djúpavogi.

Kristín Karólína (f. 1988) notar ýmsa miðla í vinnu sinni til þess að kasta ljósi á þá innri togstreitu og dulinn tvískinnung á milli vestrænna lífshátta og náttúrunnar sem maðurinn byggir. Hún skapar draumkenndar myndhverfingar sem fléttast saman við leik með hið hversdagslega og mynda óvæntar tengingar eða jafnvel opinberanir. Í verkum hennar má skynja möguleika á að fortíðin sé samofin nútíðinni og að hlutirnir í kringum okkur búi ætíð yfir mörgum lögum hið innra.

Eitt sinn var sólmyrkvin túlkaður sem ógnvænleg truflun á takti náttúrunnar. Nú er hann útreiknanlegur viðburður og vinsælt sjónarspil með sölu á meðfylgjandi varningi og minjagripum. Eclipse Chasers (2017 – 2024 -) eftir Consider to be Allies kannar sameinginarkraft náttúrunnar í samtíma sem einkennist af skautun og aukinni þörf á tengingu við umheiminn, hvernig hið manngerða hefur áhrif á samband fólks við náttúru. Hljóð og ljós úr borgarumhverfinu blæða inn í náttúru-upplifunina og vísanir í dægurmenningu til þess að deila upplifunum.

Margaux Parillaud (FR) og Mie Frederikke Fischer Christensen (DK) vinna saman undir nafninu Consider to be Allies. Þær vinna þvert á miðla, bæði tíma tengt í vídeó og gjörninga sem og grafík verk og innsetningar. Þær hafa áhuga á miðlun og kanna hvernig skynjun á raunveruleikanum og skoðana myndun er mótuð af sameiginlegum upplifunum og fjölmiðlum. Lúppa er sýningaröð þar sem tveimur vídeóverkum er stillt saman og þau spiluð í hringrás. Á nokkra vikna fresti breytist takturinn og ný verk taka við. Þriðja útfærsla Lúppu mun spilast 17.06 – 24.08.2026.

LISTAFÓLK

Kristín Karólína Helgadóttir

Consider to be Allies

SÝNINGARSTJÓRN

Agnes Ársælsdóttir & Halla Einarsdóttir

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

28
júl
Bókasafn Kópavogs
29
júl
Bókasafn Kópavogs
29
júl
Bókasafn Kópavogs
30
júl
Bókasafn Kópavogs
31
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

04
ágú
Bókasafn Kópavogs
05
ágú
Bókasafn Kópavogs
05
ágú
Bókasafn Kópavogs
10
ágú
16
ágú
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

26
ágú
Gerðarsafn
16
sep
25
jan
Gerðarsafn
18:00

Valgerður

Sjá meira