29.apr 2026 ~ 14.jún 2026

Lúppa: Gunnar Jónsson og Kleoniki Stanich

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verkin Arrival (2023) eftir Kleoniki Stanich og Sorgarhyrna (2025) eftir Gunnar Jónsson er nýjasta samspil Lúppu.

Í Arrival fylgjum við ungri konu sem upplifir sig innilokaða á heimili sínu og ferðasttil grísks eyjaklasa til þess að komast út úr stöðnuðu ástandi sínu. Rannsóknir og verk Kleoniki (1994) kanna hvernig konur virkjaalmenningsrými, bæði í raunveruleikanum og á skjánum.

Sorgarhyrna er samtal á milli landslags og lundarfars þar sem áhyggjuhrukkur á enni falla inn í samsvarandi fjallaskörð. Sú einfalda mynd endurspeglar hvernig Ísfirðingar upplifa sólarganginn á eigin skinni og tilfinningalífi á veturna þegar birtan takmarkast í lengri tíma vegna hárra fjallagarða. Í verkum Gunnars (1988) spilar staðsetning og nálægð við hafið stórt hlutverk, jafnt á harmþrunginn sem viðkvæman hátt.

Verkin eru bæði staðbundinn og í þeim rennur líkaminn saman við landslagið. Lúppa er sýningaröð þar sem tveimur vídeóverkum er stillt saman og þau spiluð í hringrás. Á sex vikna fresti breytist takturinn og ný verk taka við.

LISTAFÓLK

Gunnar Jónsson

Kleoniki Stanich

SÝNINGARSTJÓRN

Agnes Ársælsdóttir og Halla Einarsdóttir

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

21
okt
Gerðarsafn
22
okt
Gerðarsafn
23
okt
Gerðarsafn
11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira