Verið hjartanlega velkomin á listamannaspjall með Gunnari Jónssyni og hljóðgjörning Gunnars Gunnsteinssonar í tenglsum við Lúppu þann 19. maí klukkan 18:00.
Gunnar Jónsson (f. 1988) er myndlistarmaður sem vinnur einkum með vídeó og innsetningar. Í verkum hans spila staðsetning og nálægð við hafið stórt hlutverk — jafnt á harmþrunginn sem viðkvæman hátt. Verk hans, Sorgarhyrna (2025) er annað tveggja verka sem nú eru til sýnis í Lúppu á Gerðarsafni. Vídeóið er samtal á milli landslags og lundarfars þar sem áhyggjuhrukkur á enni falla inn í samsvarandi fjallaskörð. Sú einfalda mynd endurspeglar hvernig Ísfirðingar upplifa sólarganginn á eigin skinni og tilfinningalífi á veturna þegar birtan takmarkast í lengri tíma vegna hárra fjallagarða
Gunnar Gunnsteinsson er starfandi tónlistarmaður í Reykjavík. Hann lærði tónsmíðar í Amsterdam og kynntist á þeim tíma Kleoniki Stanich og verkunum hennar. Hann var þó fluttur aftur til Reykjavíkur þegar þau unnu saman að verkinu Arrival (2023) sem nú spilast í Lúppu en Gunnar tók að sér að hanna hljóðið og semja tónlistina. Þegar hann fékk sendar hljóðupptökur af tökustað verksins, sem var á eyju í miðjarðarhafinu, tók hann strax eftir miklum vindhviðum sem urðu undireins að tengibrú Gunnars við verkið, verandi staddur í rokinu á Íslandi.
Lúppa er sýningaröð þar sem tveimur vídeóverkum er stillt saman og þau spiluð í hringrás. Á sex vikna fresti breytist takturinn og ný verk taka við. Þessi útfærsla Lúppu mun spilast 29.04–14.06.2026.










