28.feb 2018 12:15

Menning á miðvikudögum | Barbara og barnabækur

Gerðarsafn

Hádegisleiðsögn í Gerðarsafni og á Bókasafni Kópavogs

Hádegisleiðsögn um verk Barböru Árnason í Gerðarsafni og sýninguna Áhrifavaldar æskunnar – íslenskar barnabækur fyrr og nú á Bókasafni Kópavogs. Sýningarnar eru liður í viðburðaröðinni Barnabókin í 100 ár sem verður á aðalsafni Bókasafns Kópavogs í febrúar.

Leiðsögnin hefst á neðri hæð Gerðarsafns þar sem skoðaðar verða teikningar, tréristur og koparstungur Barböru. Valdar barnabækur með bókaskreytingum hennar eru einnig til sýnis við þetta tækifæri. Seinni hluti leiðsagnarinnar fer fram á aðalsafni Bókasafns Kópavogs þar sem sýningin Áhrifavaldar æskunnar – íslenskar barnabækur fyrr og nú stendur nú yfir. Á sýningunni má sjá bækur frá ólíkum tímum þar sem gestir geta rifjað upp gamlar minningar og séð hvað aðrar kynslóðir hafa lesið sér til yndis. Sýningarstjóri er Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.

Menning á miðvikudögum er á dagskrá í hádeginu í hverri viku og fer ýmist fram í Gerðarsafni, Salnum, Náttúrufræðistofu og Bókasafni Kópavogs.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Salurinn
20:00

Til Manuelu

11
mar
Gerðarsafn
12
mar
Bókasafn Kópavogs
12
mar
Salurinn
13
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira

Gerðarsafn

11
mar
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira