Miðvikudaginn 2. maí kl. 12:15 verður fluttur gjörningurinn Embassy of Lucid Dreaming eftir Mariu-Magdalenu Ianchis, meistaranema í myndlist. Í gjörningnum birtist óræður heimur skírdreymis þar sem sá sofandi er meðvitaður um að hann dreymi og getur breytt framvindu drauma sinna.
Gjörningurinn fer fram á ensku og er þátttaka gestum að kostnaðarlausu.