06.apr 12:15

Menning á miðvikudögum | Stöðufundur

Gerðarsafn

Kristín Eiríksdóttir og Björk Viggósdóttir

Kristín Eiríksdóttir og Björk Viggósdóttir bregða ljósi á verk þeirra á sýningunni Stöðufundi, miðvikudaginn 6. apríl kl. 12.15 í Gerðarsafni. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Stöðufundur er verkefni sem veitir innsýn inn í hugarheim og væntingar tíu listamanna sem eru í fararbroddi sinnar kynslóðar. Listamennirnir samanstanda af fimm myndlistarmönnum og fimm rithöfundum sem eru ólíkir innbyrðis en eiga það sameiginlegt að hafa í verkum sínum fjallað um samtímann og stöðu ungs fólks í nútímasamfélagi.
Sýningarstjórar eru Kristína Aðalsteinsdóttir og Þorvaldur S. Helgason.
Stöðufundur er þó hvorki samtímaspegill né sögulegt yfirlit heldur kannski frekar eins og GIF-skrá sem spilast aftur og aftur og aftur til eilífðarnóns.
Sérstaða sýningarinnar liggur fremur í fókus hennar á persónulega upplifun listamannanna á sinni eigin fortíð, nútíð og framtíð og listrænni miðlun þess. Þá veitir samþætting listgreinanna tveggja, myndlistar og ritlistar, einstakt tækifæri til að eiga í samtali á þverfaglegum grundvelli og skapar listrænan skurðpunkt sem sýningin hverfist um.
„Neysluhyggja, mörk efniskenndar og líkamleika, yfirvofandi loftslagsvá, eftirsjá, þrá okkar eftir viðurkenningu og tengingu við aðra, auk andlegrar vellíðunar eru ákveðin leiðarstef bókarinnar og sýningarinnar sem fylgir henni heim í hlað.“ – Úr texta Kristínu Aðalsteinsdóttur, sýningarstjóra.
Myndlistarmenn: Auður Ómarsdóttir, Björk Viggósdóttir, Fritz Hendrik IV, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Páll Haukur Björnsson.
Rithöfundar: Bergur Ebbi, Fríða Ísberg, Halldór Armand, Jakub Stachowiak, Kristín Eiríksdóttir.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

03
maí
08
jún
Salurinn
14
maí
Bókasafn Kópavogs
14
maí
Salurinn
14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
16
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

18
maí
Salurinn
18
maí
Salurinn
13:30

Vistarverur

18
maí
Salurinn
24
maí
Salurinn
28
maí
04
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

14
maí
Gerðarsafn
15
maí
Gerðarsafn
24
maí
Gerðarsafn
15
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn

Sjá meira