Ertu á aldrinum 16-25 og langar að leira í góðum félagsskap?
Í vetur ætla ungmennahúsið Molinn og Gerðarsafn í samstarf þar sem ungmennum er boðið í listasmiðju í Gerðarsafni.
Fyrsta smiðjan verður leir þar sem þátttakendur skapa listaverk eða nytjahlut úr steinleir sem síðar verður brenndur.
Framtíðar smiðjur verða auglýstar síðar.
Aðgangur ókeypis og allt efni verður á staðnum.















