06.feb 2026 10:00 - 11:00

Morgunstund í myndlæsi

Gerðarsafn

Gerðarsafn

Verið hjartanlega velkomin á Morgunstund í myndlæsi fyrir fullorðna föstudaginn 6. febrúar kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og viðburða í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar, sem gestir taka þátt í.

Morgunstund í myndlæsi er ný viðburðaröð í Gerðarsafni þar sem farið verður eftir aðferðum Sjónarafls. Sjónarafl er kröftugt fyrirmyndarverkefni Listasafns Íslands sem snýr að þjálfun myndlæsis fyrir börn í tengslum við námsskrá skólanna. Með því að nota þær aðferðir sem kynntar eru í Sjónarafli fá þátttakendur lykla sem auðveldar þeim að njóta myndlistar. Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu.

Verkefnið er stutt af Safnasjóði.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12
mar
Bókasafn Kópavogs
12
mar
Salurinn
13
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

14
mar
Salurinn
14
mar
Bókasafn Kópavogs
14
mar
Bókasafn Kópavogs
14
mar
Bókasafn Kópavogs
15
mar
Salurinn

Sjá meira

Gerðarsafn

16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira