20.des 21:00 - 22:00

Mozart við kertaljós

Menning í Kópavogi

Kópavogskirkju

Camerarctica heldur árlega kertaljósatónleika í Kópavogskirkju.

Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.

Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Haldórsson sellóleikari.

Á dagskránni verða tvær af perlum Mozarts, Óbókvartettinn kv. 370 og hinn margrómaði Klarinettukvintett kv. 581. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða, Í dag er glatt í döprum hjörtum úr Töfraflautunni eftir Mozart og verður kirkjan einungis lýst upp með kertaljósum.

Hópurinn mun einnig koma fram í eftirfarandi kirkjum:

Hafnarfjarðarkirkju
mánudagskvöldið 19. des

Garðakirkju
miðvikudagskvöldið 21. des

Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudagskvöldið 22. des

Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast klukkan 21.00.

Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 2500 fyrir nemendur og eldri borgara og frítt inn fyrir börn.
Miðasala á Tix.is og við innganginn.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

04
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

05
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Salurinn
11
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

13
júl
Menning í Kópavogi

Sjá meira

Menning í Kópavogi

13
júl
Menning í Kópavogi
10
ágú
Menning í Kópavogi
12
ágú
Menning í Kópavogi
16
ágú
Menning í Kópavogi
29
ágú
05
sep
Menning í Kópavogi

Sjá meira