Steinn Kárason, M.Sc. í umhverfisfræðum og garðyrkjufræðingur, fer yfir orsakir og afleiðinar myglusveppa.
Steinn gaf út bókina Martröð með myglusvepp en í henni lýsir hann, og fleiri, reynslu af myglusvepp, einkennum myglunnar í húsum, hvernig bregðast eigi við og hvernig draga megi úr líkum á því að myglusveppur komi sér fyrir í híbýlum.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Sjáumst á Lindasafni.












