22.mar 12:15 - 13:00

Náttúruvernd, loftslagsmál og orkuskipti

Náttúrufræðistofa Kópavogs

Fjölnotasalur
Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, fjallar um áskoranir og tækifæri sem fylgja orkuskiptum.

Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, fjallar um orkuskipti í hádegiserindi á Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Íslensk stjórnvöld hafa sett sér markmið um að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti fyrir árið 2040. Það er krefjandi en spennandi verkefni fyrir orku- og veitufyrirtækin í landinu, sem verða í lykilhluverki við að ná þessu markmiði.

Samorka hefur í samvinnu við EFLU og sérfræðinga innan orku- og veitufyrirtækjanna unnið að greiningum að orku- og innviðaþörf fyrir þetta markmið stjórnvalda og mun Lovísa mun kynna niðurstöður greininganna og velta upp áskorunum, mögulegum úrlausnum og þeim tækifærum sem þessu markmiði fylgja.

Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Um fyrirlestraröð Náttúrufræðistofu Kópavogs um orkuskipti, 2023.

Heimurinn stendur frammi fyrir orkuskiptum þar sem á allra næstu árum þarf að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir umhverfisvæna og endurnýjanlega orkugjafa. Fáar þjóðir hafa jafn góða möguleika og Íslendingar á að klára orkuskiptin áður en gefinn gálgafrestur rennur út, enda er meirihluti húsnæðis nú þegar kynntur með jarðvarma og rafmagnsframleiðsla fer að langmestu leyti fram með virkjun endurnýjanlegra orkugjafa.

Eftir standa hins vegar orkuskipti í samgöngum og flutningum, þar sem jarðefnaeldsneyti er enn ráðandi orkugjafi. Þetta kallar á nýja forgangsröðun, uppbyggingu innviða og endurnýjun vélbúnaðar ásamt skýrri stefnumörkun og eftirfylgni til að markmiðum verði náð innan gefins tímaramma.

Til að ræða þetta stóra mál höfum við fengið til liðs við okkur sérfrótt fólk á sviði orkuvinnslu, umhverfisverndar og heimspeki, enda snertir viðfangsefnið flest svið tilveru okkar sem og komandi kynslóða. Í fyrirlestraröð á vormisseri 2023 mun Náttúrufræðistofan bjóða uppá röð fyrirlestra sem fjalla um orkuskiptin frá mismunandi sjónarhornum í viðburðaröðinni Menning á miðvikudögum.

  • 1. febrúar: Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri
  • 15. febrúar: Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar
  • 1. mars: Gunnar Hersveinn, heimspekingur
  • 22. mars: Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku

Menning á miðvikudögum eru styrkt af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

03
sep
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
jún
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

20
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn
21
jún
Gerðarsafn
15:00

Leiðsögn

23
jún
Bókasafn Kópavogs
24
jún
Bókasafn Kópavogs
25
jún
Bókasafn Kópavogs
25
jún
Bókasafn Kópavogs
26
jún
Salurinn

Sjá meira

Náttúrufræðistofa Kópavogs

21
jún
Gerðarsafn
25
jún
Bókasafn Kópavogs
30
jún
04
júl
Náttúrufræðistofa Kópavogs
02
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
16
júl
Bókasafn Kópavogs
23
júl
Bókasafn Kópavogs
30
júl
Bókasafn Kópavogs
06
ágú
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira