05.maí 2022 16:00 - 18:00

Opnunarviðuburður | Snúningur

Gerðarsafn

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Snúningur, á Hönnunarmars

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Snúningur á Hönnunarmars.
Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 5. maí kl. 16:00 á neðri hæð Gerðarsafns.
Hanna Dís Whitehead tekur annan snúning á fyrri verkum þar sem áhugaverðum efnivið, litum, formum og sögu er blandað saman á nýjan hátt.
Orka keðjuverkunar leiðir eitt af öðru, ein hugmynd ýtir á þá næstu.

Stundum væri tilvalið að taka annan snúning á gömlum hugmyndum með nýja vitneskju í farteskinu. Verkefni og aðferðir hafa þróast áfram og því komin tími til að fá á þau nýtt sjónarhorn.

Á sýningunni verða gerðar tilraunir til að búa til húsgögn úr því sem áður var ílát, blanda saman nýjum aðferðum á fyrri hugmyndir og fá sömu sjónrænu efnistilfinningu út úr ólíkum efnivið. Sum ferli fá tækifæri til að klárast en önnur taka flugið. Skúffuhugmyndir líta loksins dagsins ljós.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Bókasafn Kópavogs
07
mar
Náttúrusafn Kópavogs
08
mar
Salurinn
09
mar
Bókasafn Kópavogs
10
mar
Bókasafn Kópavogs
11
mar
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
mar
Gerðarsafn

Sjá meira

Gerðarsafn

11
mar
Gerðarsafn
16
maí
06
sep
Gerðarsafn

Sjá meira