Útgáfuhóf Byggðakönnunar Kársness

Velkomin í útgáfuhóf Byggðakönnunar Kársness. Í henni er sögulegt yfirlit um þróun byggðar og byggingarsögu Kársness. Staðháttum er lýst og greint frá upphafi og lykilþáttum í þróunbyggðarinnar, gerð grein fyrir húsum, mannvirkjum og náttúrusvæðum.

Parabóla | Finnbogi Pétursson

Flökt. Sveifla. Púls. Taktur. Tími.Allt í kringum okkur eru eðlisfræðilegir kraftar að verki. Finnbogi Pétursson hefur gert það að ævistarfi sínu að skapa aðstæður þar sem áhorfandinn tekur eftir, skynjar, þessa krafta. Oft í gegnum bylgjur, sem heyrast stundum en í öðrum verkum sjást. Í Parabólu gerir hann takt Jarðar sýnilegan. Listamaðurinn notar hljóð en […]

Raddbandið um jólin

Raddbandið syngur inn jólin á glæsilegum tónleikum í Salnum í Kópavogi þann 19. desember! Samkvæmt dagatalinu ætla söngdívur Raddbandsins að vera búnar að græja allt fyrir jólin í tæka tíð svo jólastressið nái ekki yfirhöndinni. Í ár munu þær loksins ná fullkomnum tökum á jólahátíðinni og móðurhlutverkinu. Sannkallaðar ofurkonur! Ætli þær toppi sig 19. desember? […]

Ipsa Dixit

Ipsa Dixit er kammerópera fyrir rödd, flautu, fiðlu og slagverk eftir bandarísku söngkonuna og tónskáldið Kate Soper. Verkið var frumflutt í New York árið 2016 af Soper sjálfri og The Wet Ink Ensemble. Það hlaut tilnefningu til Pulitzer verðlaunanna í tónlist árið 2017.  Tónlistargagnrýnandinn Alex Ross kallaði verkið 21. aldar meistaraverk í rýni sinni fyrir […]

Navidad Nuestra – jólatónleikaröð Los Bomboneros í Salnum

Kaupið miða á alla þrjá tónleikana á sérstöku verði! Jólaundirbúningur hljómsveitarinnar Los Bomboneros hefst á vænni flís af feitum sauð því hljómsveitin býður til sannkallaðrar veislu í desember þar sem engu verður til sparað. Fyrstu tónleikarnir verða þann 4.des þar sem hefðir bóleró – formsins og son cubano spilastílsins verðar heiðraðar. Gestur kvöldsins er enginn […]

Jólatónleikar Caudu Collective

Á jólatónleikum Caudu Collective verður flutt hátíðleg jólatónlist, ný og gömul, fyrir kammersveit og sönghóp. Tónleikarnir hefjast á nýrri útgáfu kafla úr verkinu Adest Festum, sem þær Sigrún Harðardóttir, Þóra Margrét Sveinsdóttir og Þórdís Gerður Jónsdóttir, sömdu út frá stefjabrotum úr tíðasöngvum Þorláks helga. Þorlákur var biskup í Skálholti á 12. öld og eru Þorlákstíðir […]

Una Torfa í jólafötunum

Una Torfa kíkir í Salinn í jólaskapi! Á notalegum tónleikum mun Una flytja blöndu af sínum eigin lögum og jólalögum sem henni þykir vænt um. Hafsteinn Þráinsson verður með Unu á sviðinu og leikur á gítar. Í jólastressinu er ekkert betra en að gefa sér góða kvöldstund til þess að slaka á og rifja upp […]

Japönsk manga og anime smiðja fyrir 13+

Í smiðjunni verður fjallað um manga og anime og mismunandi flokkar, gerðir og teiknistílar skoðaðir. Þátttakendum gefst tækifæri til að læra nokkrar setningar á japönsku og að skrifa nafnið sitt með katakana! Þátttakendur eru hvattir til að koma með spurningar um Japan og taka uppáhalds Japanstengda hlutinn sinn til að sýna hvert öðru. Öll 13 […]

Ljós og litir

Í desember mun Vísindaskólinn lýsa upp skammdegið með spennandi vísindasmiðju þar sem við fræðumst um ljós og mismunandi bylgjulengdir þess! Bylgjulengdir? Hefurðu velt því fyrir þér afhverju sólin er gul? Eða hvernig regnbogi myndast? Það kemur einmitt bylgjulengdum ljóss við. Við fáum svör við þessum spurningum og lærum saman um litróf ljóssins. Við prófum að […]

Scarlet Red, Royal Blue – Katrín Agnesar

Opnun í Y Gallerí Scarlet Red, Royal Blue er framhald verka Katrínar Agnesar þar sem hún vinnur með litaduft sem efnivið. Arkitektúr og virkni sýningarrýmisins leiddu Katrínu til að þróa efnið á þann hátt að það væri óáþreyfanlegt svo úr varð litaður reykur, framleiddur úr litadufti. Pigment og loft. Eftir tilraunaferli í samvinnu við efnafræðinga, […]

Tala og spila

Talar þú smá íslensku og vilt æfa þig? Komdu að spila og tala íslensku á aðalsafni Bókasafns Kópavogs, alla laugardaga frá 11:00 – 12:30. Kaffi og kósý, kostar ekkert. Velkomin! Viðburðaröðin Tala og spila er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi og er styrkt af Bókasafnasjóði, Nordplus og jafnréttis- og mannréttindasjóði Kópavogsbæjar og í […]

Tala og spila

Talar þú smá íslensku og vilt æfa þig? Komdu að spila og tala íslensku á aðalsafni Bókasafns Kópavogs, alla laugardaga frá 11:00 – 12:30. Kaffi og kósý, kostar ekkert. Velkomin! Viðburðaröðin Tala og spila er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi og er styrkt af Bókasafnasjóði, Nordplus og jafnréttis- og mannréttindasjóði Kópavogsbæjar og í […]