VAKA | Hádegistónleikar: Langeleik í 500 ár

Ingrid Lingaas Fossum, tónlistarmaður, þjóðdansari og þjóðlagatónlistarmaður ársins í Noregi árið 2025, mun spila á norskt langspil. Á tónleikunum mun hún einnig rekja sögu norska langspilsins. Viðburðurinn er hluti af Vaka þjóðlistahátíð Öll velkomin. Ingrid Lingaas Fossum er einn fremsti langeleik-leikari Noregs í dag – og hljóðfærið sem hún spilar á er náinn frændi íslenska […]

Lesið á milli línanna

Á fundinum 3. desember tökum við fyrir bókina Huldukonan eftir Fríðu Ísberg. Konurnar í Lohr fjölskyldunni skilja ekki að Sigvaldi þeirra, með alla sína augljósu mannkosti, hafi aldrei gengið út. Ennfremur fá þær ekki skilið þá fráleitu ákvörðun hans að gerast einsetumaður í eyðivík. Dag einn birtist Sigvaldi á dyraþrepi móður sinnar með mánaðargamla stúlku […]

Lesið á milli línanna

Á fundinum 5. nóvember tökum við fyrir bókina Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur. Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin. Á einmanalegri ferð sinni um […]

Lesið á milli línanna

Á fundinum 1. október tökum við fyrir bókina Hildur eftir Satu Rämö. Fyrir aldarfjórðungi týndust tvær litlar systur í óveðri og aldrei hefur neitt til þeirra spurst. En Hildur, stóra systir þeirra, er orðin rannsóknarlögreglukona á Ísafirði og óhjákvæmilega leitar hvarf systranna oft á hugann. Lögreglan fyrir vestan er fáliðuð og fæst við margt. Þegar […]

Lesið á milli línanna

Fyrsti fundur haustsins verður 3. september! Á fundinum 3. september tökum við fyrir bókina Ótrúlega skynugar skepnur eftir Shelby van Pelt. Tova Sullivan er nýorðin ekkja og farin að vinna við ræstingar í Sædýrasafni Sowell Bay. Það hefur alltaf átt vel við hana að hafa nóg fyrir stafni, ekki síst þegar erfiðleikar steðja að. Eins […]

Plöntuskiptimarkaður

Hefur þú fengið leið á blómunum í stofunni? Vantar þig nýja plöntu í eldhúsið? Komdu með pottaplöntu(r), blóm og/eða afleggjara á aðalsafn og sjáðu hvort þú finnir eitthvað spennandi í staðinn. Inni-og útiblóm velkomin. Plöntuskiptamarkaðurinn verður uppi 1.-5. september og á lokadeginum, laugardaginn 5. sept. verður Garðyrkjufélag Ísland einnig með plöntuskiptidag fyrir utan safnið.

Plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Íslands

Árlegur plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Íslands fer fram við aðalsafn, fyrir utan barnadeildina á 1. hæð, laugardaginn 5. september kl. 12-14. Komdu með pottaplöntur og afleggjara, inniblóm og útiblóm, stór og smá og taktu plöntu með þér heim í staðinn. Allt grænt og vænt velkomið!

Brautryðjendur 5

Tónleikar í Salnum í Kópavogi föstudaginn 16. október 2026 kl. 20:00, til heiðurs stórsöngvurunum Jóni Sigurbjörnssyni, Garðari Cortes og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Fjallað verður um feril þessara listamanna og flutt söngatriði úr efnisskrám þeirra. Flytjendur: Egill Árni Pálsson, Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir, Kristinn Sigmundsson, Hrönn Þráinsdóttir, Signý Sæmundsdóttir, Arnar Jónsson, Sigurður Helgi ásamt Karlakór Kópavogs. Verkefnið […]

Útgáfutónleikar – Brahms og klarínettan

Flytjendur eru Rúnar Óskarsson klarínetta, Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó, Sigurður Bjarki Gunnarsson selló og Strokkvartettinn Siggi. Verkefnið hófst sem Tíbrártónleikar í Salnum og er nú komið út á tvöföldum geisladiski og á streymisveitur í útgáfu Sono Luminus.Þar eru þau fjögur verk sem Johannes Brahms samdi fyrir klarínettu á síðustu árum ævi sinnar, tvær sónötur fyrir […]

Uppskeruhátíð sumarlesturs

Hin árlega uppskeruhátíð sumarlesturs verður fimmtudaginn 20. ágúst kl. 17.00 á 1. hæð aðalsafns (barnadeild). Gunnar Helgason stuðbolti og rithöfundur mætir á aðalsafn og allir krakkar sem koma fá glaðning! Fimm heppnir vinningshafar verða dregnir út úr öllum happamiðum sumarsins. Hlökkum til að sjá alla sumarlestrarhesta!

Langleggur og Skjóða í Lindaskógi

Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna og kunna margar skemmtilegar sögur úr Grýluhelli. Þau hafa heldur betur slegið í gegn síðustu ár og heimsækja hinar ýmsu jólaskemmtanir með glænýja jólasögu á hverju ári. Í ár segir Skjóða frá því þegar hún og Rófa litla systir hennar fengu það mikilvæga verkefni að sækja hið fullkomna jólatré […]

Leiðsögn: Fraser Muggeridge um sýninguna Landlæg hamingja eftir Jeremy Deller

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn með Fraser Muggeridge um sýninguna Landlæg hamingja eftir Jeremy Deller miðvikudaginn 26. ágúst klukkan 18:00. Fraser er grafískur hönnuður frá London sem hefur unnið með Jeremy Deller frá 2012 við að móta grafísku verkin hans. Leiðsögn hans mun fjalla um lykil verk sýningarinnar Warning Graphic Content (1993-2026) þar sem hann […]