Málverkasýning barna í leikskólanum Álfaheiði

„Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch, flugvélavélmennum og kappakstursbílum“ Sýning á málverkum barna í leikskólanum Álfaheiði Velkomin á sýningaropnun föstudaginn 14. ágúst kl. 15:00 í Barnadeild Bókasafns Kópavogs, 1. hæð. Málverk og blönduð tækni, unnin af börnum í leikskólanum Álfaheiði síðastliðið vor. Börnin eru fædd á árunum 2020-2023 og af öllum deildum leikskólans. Viðfangsefni […]
Sveppafræðsla í Guðmundarlundi

Langar þig að vita meira um sveppi? Laugardaginn 5. september stendur Náttúrusafn Kópavogs í samstarfi við Skógræktarfélag Kópavogs og Sveppafélagið fyrir fræðslu frá kl. 11-13 í Guðmundarlundi. Við hittumst við Gamla húsið (húsið næst bílastæðinu) kl. 11 þaðan sem Jóhannes Bjarki Urbancic, forsvarsmaður Sveppafélagsins og Hlynur Steinsson sérfræðingur hjá Náttúrusafninu leiða fræðsluna. Takið með körfu […]
Hvað er jurtalitun?

Hvað er jurtalitun? Hvað er er erindaröð á vegum Náttúsafns Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli. Viðfangsefni þessa hádegisfyrirlestrar er í anda VÖKU þjóðlistahátíðar dagana 13. – 19. september og mun Guðrúnu Bjarnadóttir náttúrufræðingur og athafnakona með meiru fjalla um […]
Ævintýraheimur Astrid Lindgren

Á þessum tónleikum verða flutt lög sem öll þekkja úr sýningum og myndum sem ættu að vekja góða minningar hjá börnum á öllum aldri.
Sirkussmiðja

Hringleikur opnar dótakassann sinn með alls kyns sirkusáhöldum í forsal Salarins og býður gestum og gangandi að koma og prófa undir handleiðslu reynds sirkuslistafólks. Um opna smiðju er að ræða þar sem stoppa má við í lengri eða skemmri tíma. Stór og smá geta leikið sér saman og lært að djöggla, snúa diskum eða ná jafnvægi á veltibretti. Öll […]
Kartöflustimplar á Lindasafni

Við breytum einfaldri kartöflu í prentstimpil og búum til litrík mynstur og skemmtileg listaverk. Kartöfluprent er auðvelt, skemmtilegt og hentar öllum aldri. Allur efniviður er á staðnum og þátttaka er ókeypis. Öll eru hjartanlega velkomin á Lindasafn. Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar […]
Styrktartónleikar Barnaheilla – byggjum skóla í Síerra Leóne

Mugison, Ellen Kristjánsdóttir, KK, Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben og Hipsumhaps koma fram á tónleikum Barnaheilla til að safna fyrir nýjum barnaskóla í afskekkta þorpinu Macca í Síerra Leóne.
Jólasprettikort

Reddaðu jólakortunum snemma! Þátttakendur læra einfaldar aðferðir til að búa til „pop-up“-kort (sprettikort) og uppgötva hvernig pappírsbrot, klipp og litir geta breytt flötum pappír í litla heima sem spretta fram. Umsjón með smiðjunni hefur Iva Franjic. Smiðjan fer fram á íslensku og ensku auk þess sem aðstoð býðst á króatísku. Smiðjan hentar öllum aldri og allur efniviður er á staðnum. Aðgangur […]
Jaðarsettar raddir og bókmenntir

Rithöfundarnir Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Eva Rún Snorradóttir verða gestir Bókasafns Kópavogs í Menningu á miðvikudögum 9. september og ræða jaðarsettar raddir og bókmenntir. Halla og Eva Rún standa að bókmenntahátíðinni Queer Situations, sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir metnaðarfulla dagskrá og áherslu á hinsegin bókmenntir og verk sem standa utan meginstraumsins. Viðburðurinn er hluti af verkefninu Bókasafn fjölbreytileikans, sem nýtur […]
Dansdropi

Saga sem hreyfist og hreyfir við börnum. Dansdropi er smiðja þar sem börn verða leidd inn í heim dansins út frá leikjum og fá að spreyta sig á því að umbreytast í krókódíla, vélmenni, vatn og margt fleira. Í gegnum hreyfingarnar búum við til örsögur sem börnin geta svo teiknað eða skrifað á blað. Dans, hreyfing og ímyndunarafl fléttast saman og skapa rými þar […]
Bókbandssmiðja

Komdu og lærðu undirstöðuatriði bókbands í fjölskyldusmiðju á Bókasafni Kópavogs. Við lærum um pappír, brjótum saman síður, búum til kápu og saumum saman okkar eigin litlu bók með einfaldri bókbandstækni. Allur efniviður er á staðnum og þú tekur bókina þína með þér heim að smiðju lokinni. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Ath. að notaðar verða […]
Bálrautt teppi úr bútasaum

Vissir þú að tómatsósa bragðast best þegar hún er borðuð í gegnum vettling? Hefurðu upplifað sömu gleði og makríllinn þegar hann heldur út á djúpið? Af hverju eru til svona fá lög um haustið? Og af hverju fjalla þau alltaf um að það sé grátt og dapurlegt? Hvers vegna er haustið búið um leið og […]